Viðskipti innlent

Skattlagning á neftóbak tvöfölduð

BBI skrifar
Neftóbak.
Neftóbak. Mynd/GVA
Í nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að skattlagning á neftóbak verði tvöfölduð. Skattlagning á neftóbak hingað til er talin hafa verið óeðlilega lág samanborið við annað tóbak.

Of lág skattlagning á neftóbak þykir hafa leitt af sér óeðlilega þróun í neyslu þess hérlendis að undanförnu, þ.e. neyslan hefur aukist meira en eðlilegt þykir. Því er þessi sérstaka skattahækkun lögð til í ár og vörugjöldin tvöfölduð.

Lagt er til að skattlagning á tóbak almennt, annað en neftóbak, verði aukin um 15% í frumvarpinu. Stjórnvöld telja svigrúm til hækkananna þar sem smásöluverð á tóbaki er talsvert hærra hér en í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Gert er ráð fyrir að þessar hækkanir skili auknum tekjum upp á einn milljarð króna í ríkiskassann.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×