Handbolti

Aron ráðinn þjálfari til ársins 2015 | Þjálfar líka Hauka í vetur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
mynd/pjetur
Aron Kristjánsson var í hádeginu ráðinn landsliðsþjálfari A-landsliðs karla til ársins 2012. Aron mun einnig þjálfa Haukaliðið í vetur en hætta næsta sumar og einbeita sér alfarið að vinnu sinni fyrir HSÍ.

Gunnar Magnússon mun áfram verða í þjálfarateymi landsliðsins og vonir standa til þess að Óskar Bjarni Óskarsson verði einnig áfram aðstoðarþjálfari.

Vísir lýsti því helsta sem fram fór á blaðamannafundinum í hádeginu og má lesa það hér að neðan.

- Hefðbundnum blaðamannafundi er lokið.

- Fyrsta verkefni er að tala við leikmenn liðsins um framhaldið segir nýi þjálfarinn. Aron vonar að Ólafur Stefánsson haldi áfram í landsliðinu. Hann hefur ekki rætt við neina leikmenn nú þegar.

- Einar framkvæmdastjóri segir að þetta sé gömul reglugerð og eigi ekki við lengur. Ráðningin er því lögleg segir Einar.

- Gaupi spyr hvort það sé löglegt að landsliðsþjálfari þjálfi einnig félag í efstu deild. Knútur staðfestir að svo sé ekki samkvæmt reglugerð. Aron átti tvö ár eftir af samningi sínum við Hauka en mun aðeins klára eitt ár.

- Aron þakkar fyrir traustið en segir það vera afar krefjandi að taka við starfinu af Guðmundi. Hann ætlar að byggja á sama grunni.

- Fyrstu verkefni Arons eru að stýra liðinu í leikjum í undankeppni EM 2014. Hann fer svo með liðið á HM á Spáni í janúar.

- Aron mun þjálfa Hauka áfram í vetur. Hann mun hætta með félagið næsta sumar. HSÍ fannst ósanngjarnt að rífa þjálfarann af félaginu korteri fyrir mót.

- HSÍ vildi halda sama teymi og hefur samið við Gunnar Magnússon um að vera aðstoðarmaður Arons. Óskar Bjarni hefur einnig áhuga á að halda áfram en hann er nýbyrjaður að þjálfa í Danmörku og hefur ekki enn tekist að ganga frá samningi við hann. Knútur er bjartsýnn á að það gangi upp en hann vonaðist til þess að klára það í morgun. Það gekk ekki.

- "Aron var efstur á blaði," segir Knútur og bætir við að samningaviðræður hafi gengið hratt fyrir sig. Gengið var frá samningnum rétt fyrir Ólympíuleikana.

- Knútur Hauksson tekur fyrstur til máls. Segir að það hafi verið mikilvægt að ráða mann sem býr hér á landi. HSÍ vill að þjálfarinn hafi meiri vinnuskyldu á skrifstofunni og komi að uppbyggingunni á íslenskum handbolta.

- Fundurinn er nú að byrja. Mættir eru Aron Kristjánsson, Knútur Hauksson, formaður HSÍ, og Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ ásamt fleiri stjórnarmönnum. Fjölmiðlabönnum er boðið upp á samlokur, ávexti og súkkulaðikex. Kaffið er gott.

- Aron er mjög reyndur þjálfari. Hann gerði Hauka að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð og hefur verið í sérflokki sem félagsþjálfari á Íslandi undanfarin ár. Hann þjálfaði einnig Skjern í Danmörku á sínum tíma og þjálfaði síðan Hannover-Burgdorf áður en hann kom aftur heim.

- Það á enn eftir að koma ýmislegt í ljós á þessum fundi. Hverjir verða aðstoðarmenn Arons og hvort hann haldi áfram að þjálfa Haukaliðið. Fjölmiðlamenn streyma nú á fundinn hver á fætur öðrum. Gaupi er mættur og er hress.

- Aron semur við HSÍ til ársins 2015. Hann er að skipta um föt í augnablikinu og að skella sér í pólo-bol merktum HSÍ. Hann er mættur í bolnum og tekur sig vel út í honum.

- Forkólfar HSÍ eru hér mættir ásamt nýja landsliðsþjálfaranum, Aroni Kristjánssyni. Það er líklega verst geymda leyndarmál ársins að Aron væri að fara að taka við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×