Innlent

Sneri aftur og hannar barnaleikföng

Erla Hlynsdóttir skrifar
Íslensk börn geta brátt farið að hanna sín eigin viðarleikföng, mála þau og setja saman. Iðnhönnuður sem hefur stofnað fyrirtækið Geislar sem sérhæfir sig í geislaskurði, segir börnin tengjast leikföngunum mun betur á þennan hátt.

Pallbílar, flugvélar og þyrlur eru meðal þess sem Geislar kemur til með að framleiða.

Fyrirtækið stofnaði Pálmi Einarsson sem nýverið söðlaði um, flutti frá Bandaríkjunum þar sem hann hafði í sjö ár unnið í þróunardeild Össurar, og verið í bæði vöruhönnun og verkefnisstjórnun.

Pálmi býr í Geislalind, og í hönnunarteymi hans eru geislarnir hans tveir, Róbert og Brynjar.

„Þetta byrjaði allt þegar Róbert var heima lasinn. Þeim finnst alltaf skemmtilegast þegar við gerum eitthvað saman, þegar víð smíðum eitthvað eða teiknum. Þannig að við teiknuðum upp einn svona vörubíl. Þetta er búið að vera rosalega vinsælt og þeir búnir að leika sér með þetta út í eitt. Þeim finnst svo gaman að fá að taka þátt í að búa þetta til," segir hann.

Nánar er rætt við Pálma í meðfylgjandi myndskeiði.

Geislar eru einnig með gjafavörulínu, og þar sem vörurnar eru geislaskornar í stál.

Fyrirtækið kynnti starfsemi sína á Hönnunarmars og þar vakti sérstaka athygli kassi utan um svokallaðar vínbeljur.

Fyrirtækið er enn í bílskúrnum hjá Pálma, en í maí er væntanleg til landsins sérstök geislaskurðarvél og þá fyrst fer starfsemin á fullt. Auk leikfanga og gjafavöru verður þar hægt að fá geislaskurð í ýmis efni.

Sjá vef Geisla



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×