Innlent

Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta

Bessastaðir
Bessastaðir
Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta á Bessastaði, eða rúm 66 prósent landsmanna. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup. Tæplega 34 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnunni vildu helst sjá Ólaf Ragnar Grímsson gegna embætti forseta Íslands áfram.

Í tilkynningu frá hópnum Betri valkost á Bessastaði, sem lét framkvæmda könnunina, segir að þrjár konur hafi oftast verið nefndar sem þeir valkostir sem fólk vildi helst fá í staðinn fyrir sitjandi forseta. „Þetta eru þær Þóra Arnórsdóttir, Elín Hirst og Salvör Nordal. Næstir á eftir komu Páll Skúlason, Stefán Jón Hafstein og Þórólfur Árnason. Athygli vekur að nær tvöfalt fleiri nefndu Þóru sem sitt fyrsta val, en þau sem koma í næstu sætum á eftir."

Alls völdu 30,3% þeirra sem nefndu að minnsta kosti einn valkost í könnuninni Þóru sem sitt fyrsta, annað eða þriðja val, en 41,5% þeirra völdu Ólaf í eitthvað sæti. Þá völdu rúmlega 22% Elínu Hirst og tæplega 19% Salvöru Nordal sem sitt fyrsta til þriðja val. Aðrir sem spurt var um i könnuninni voru valdir í eitthvað sæti af um 17% eða færri.

„Samkvæmt þessu virðist fjöldi frambjóðenda geta ráðið mestu um það hvort núverandi forseti haldi velli eða ekki. Þá vekur það athygli að 83% af þeim sem svöruðu tóku afstöðu," segir í tilkynningunni.

Þátttakendur í könnuninni voru beðnir um að velja sinn fyrsta, annan og þriðja valkost sem næsta forseta landsins. Könnunin fór fram dagana 15. - 23. mars 2012. Spurt var: Hvert eftirtalinna myndir þú helst vilja sjá sem forseta Íslands?

Svarhlutfall var 62,8% og úrtaksstærð 1346 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr viðhorfshópi Capacent Gallup. Könnunin var gerð fyrir hópinn Betri valkost á Bessastaði, sem stofnaður var fyrr í þessum mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×