Tíska og hönnun

Vopnabúrið í hóp bestu verslana heims

Verslun Sruli Recht, Vopnabúrið, var valin ein af tíu athyglisverðustu verslunum síðasta árs af Wallpaper. 
Fréttablaðið/Stefán
Verslun Sruli Recht, Vopnabúrið, var valin ein af tíu athyglisverðustu verslunum síðasta árs af Wallpaper. Fréttablaðið/Stefán
Tímaritið Wallpaper hefur valið Vopnabúrið, hönnunarverslun í eigu vöruhönnuðarins Sruli Recht, á meðal tíu athyglisverðustu verslana heims árið 2010. Vopnabúrið er þar með komið í hóp verslana á borð við Hermès í New York.

Í greininni um Vopnabúrið segir meðal annars að bæði útlit og innihald verslunarinnar sannar í eitt skiptið fyrir öll að tómir bankareikningar hefti ekki sköpunargleðina sem ríkir á Íslandi. Sruli segist að vonum ánægður með umfjöllunina en á meðal þeirra verslana sem nefndar voru má nefna Hermés í New York, Comme des Garçons í Hong Kong og verslun Stella McCartney í Mílanó.

„Þetta er frábært. Búðin er lítil og úr alfaraleið, meira að segja hér í Reykjavík, þannig það er frábært að fá umfjöllun í svo stóru alþjóðlegu blaði," segir Sruli og bætir við: „Þetta kemur manni samt alltaf jafn mikið á óvart og ég held að það sé bara gott." Sruli segist hafa komist að þessu með aðstoð Google leitarvélina, en hún bendir honum á þegar fréttir um verslunina rata á Netið.

Aðspurður segir Sruli alla umfjöllun hjálpa og viðurkennir að mikið hafi verið fjallað um Vopnabúrið allt frá því verslunin opnaði. „Öll umfjöllun hjálpar. Líka þessi grein," segir hann og hlær. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×