Innlent

„Þú ert svo mikill aumingi“

Saksóknari telur að ekki hafi verið sýnt fram á ósakhæfi Gunnars Rúnars Sigurþórssonar og krefst þess að hann verði dæmdur fyrir morðið á Hannesi Helgasyni í 16 ára fangelsi. Öll fjölskylda Hannesar fylgdist með aðalmeðferðinni sem fór fram í dag.

Hátt í 50 manns sóttu réttarhöldin sem hófust klukkan 9 morgun. Dómsalur 1 í Héraðsdómi Reykkjaness var þéttsetinn og á fremsta bekk, sat fjölskylda Hannesar heitins Helgasonar. Færri komust að en vildu og var þeim þá komið fyrir í hliðarsal þar sem réttarhöldunum var hljóðvarpað.

Rétt eftir klukkan níu var sakborningurinn, Gunnar Rúnar Sigurþórsson, færður í réttarsalinn. Hann virtist rólegur og yfirvegaður, en þeir sem bjuggust við því að hann myndi í dag loksins varpa einhverju ljósi á gjörðir sínar urðu fyrir vonbrigðum.

Eftir að verjandi Gunnars tjáði dómara að Gunnar myndi ekki svara spurningum fékk hann að yfirgefa réttarsalinn. Við það voru vinir og ættingjar Hannesar ósáttir. Gunnar var leiddur út úr dómsalnum og á leið sinni út í bíl neitaði hann einnig að svara spurningum fréttamanns.

Áður en ekið var með hann á brott stökk elsta systir Hannesar til augljóslega ósátt við að Gunnar skyldi ekki vera viðstaddur réttarhöldin og sagði: „Þú ert svo mikill aumingi. Getur ekki einu sinni verið viðstaddur."

Í réttarhöldunum er í aðalatriðum aðeins tekist á um einn hlut, hvort Gunnar sé sakhæfur eða ekki. Þrír geðlæknar sem báru vitni segja að svo sé ekki. En þó þeir komist allir að sömu niðurstöðu er rökstuðningur þeirra ekki alveg sambærilegur. Þannig sagði einn geðlæknirinn að í Gunnari væru tveir persónuleikar sem togist á, en hinir geðlæknarnir tveir töluðu frekar um svæsið geðrof. Saksóknari sagði Gunnar hafa vitað hvað hann var að gera og að ekki hafi verið sýnt fram á ósakhæfi.

Auk geðlæknanna bar svo vitni unnusta Hannesar heitins, stúlkan sem Gunnar var svo sjúklega hugfanginn af. Hún sagðist aðeins skugginn af sjálfri sér eftir morðið. Aðkoman þegar að hún gekk inn á heimili þeirra Hannesar eftir að morðið var framið sé föst í huga hennar og að hún muni seint ná sér að fullu.


Tengdar fréttir

Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins

Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni.

Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars

Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag.

Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar

„Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn.

Morðmálið lagt í dóm

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið.

Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal

Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum.

Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins

Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu.

Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum

Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu.

Gunnar Rúnar með tvískiptan persónuleika - afar umdeild röskun

Samkvæmt niðurstöðum Helga Garðars Garðarsson, geðlæknis, þá er Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni, með tvískiptan persónuleika. Vísir ræddi við Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni göngudeildar og bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, en hún segist hafa séð örfá tilvik á sínum 25 ára ferli.

Erfiður morgunn fyrir fjölskyldu Hannesar

„Það hefur verið erfitt fyrir þá sem sitja í dómsalnum að hlusta á óhugnanlegar lýsingarnar á morðinu. Ekki síst fyrir fjölskyldu, vini og aðstandendur Hannesar. Þetta hefur verið erfiður morgunn,“ sagði fréttamaðurinn Andri Ólafsson, í viðtali við Bylguna í hádeginu, þar sem hann lýsti andrúmsloftinu í réttarhöldunum yfir Gunnar Rúnari Sigurþórssyni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×