Jól

Heimalagaður jólaís

Uppskriftin dugar fyrir sex til átta manns. Það er líka gott að bræða 3 Mars-stykki út í 1 dl. rjóma og búa til heita súkkulaðisósu á ísinn.

1/2 l rjómi

6 eggjarauður

1 bolli púðursykur

1 tsk. vanilludropar

100 gr. Toblerone



Rjóminn er þeyttur. Eggjarauðurnar og púðursykurinn eru þeytt vel þangað til myndast kvoða. Vanilludropum er bætt út í. Rjóma er blandað varlega saman við eggja- og púðursykurskvoðuna. Toblerone er brytjað niður og sett út í. Blandan er síðan sett í form (gott ef það er með loki) og fryst.

Dugar fyrir sex til átta manns.

Ísinn stendur einn og sér og er mjög góður þannig. Það er líka gott að bræða 3 Mars-stykki út í 1 dl. rjóma og búa til heita súkkulaðisósu






×