Innlent

Vottaði unnustunni samúð eftir morðið

Gunnar Rúnar var leiddur í handjárnum í dómsal. Hann baðst undan því að sitja aðalmeðferðina.Frettabladid/GVA
Gunnar Rúnar var leiddur í handjárnum í dómsal. Hann baðst undan því að sitja aðalmeðferðina.Frettabladid/GVA

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í ágúst á síðasta ári, sendi unnustu Hannesar samúðarkveðjur og hringdi í hana eftir verknaðinn.

Þetta kom fram í máli Jóns Egilssonar, réttargæslumanns foreldra Hannesar Þórs, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Ákæruvaldið og verjandi Gunnars Rúnars tókust á um sakhæfi hans við flutning málsins. Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari krafðist sextán ára fangelsisdóms yfir Gunnari Rúnari og til vara vistunar á viðeigandi stofnun. Hún taldi ekki hafa verið sýnt fram á að hann væri ósakhæfur. Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi sakborningsins, krafðist þess að hann yrði sýknaður á grundvelli ósakhæfis eða að hann yrði dæmdur til vægustu refsingar.

Kaus að tjá sig ekki

fjöldi manns Fjöldi manns beið þess að dómsalurinn yrði opnaður í gærmorgun. Tveir dómsalir voru teknir undir aðalmeðferðina til að allir gætu hlýtt á hana sem þess óskuðu.

Þrír geðlæknar, sem mátu sakhæfi Gunnars Rúnars, mættu fyrir dóminn og gáfu skýrslu. Sjálfur mætti Gunnar Rúnar og staðfesti lögregluskýrslur varðandi málið. Hann kaus að tjá sig ekki fyrir dómi og jafnframt að vera ekki viðstaddur réttarhöldin. Hann var því leiddur í burtu að því búnu.

Geðlæknarnir þrír voru á einu máli um að Gunnar Rúnar væri ekki sakhæfur. Helgi Garðarsson, geðlæknir á Landspítalanum, sagði að Gunnar Rúnar hefði þróað með sér sjúklegt sálarlíf með djúpstæðu rofi á persónuleika í kjölfar þess að faðir hans svipti sig lífi þegar hann var níu ára. Fram til þess hefði hann verið ofureðlilegt barn. Síðar hefði hann þróað með sér tvo persónuleika, annars vegar verið hinn eðlilegi, heilbrigði og dagfarsprúði piltur en hins vegar persónuleiki á djúpu geðrofsplani.

Sjúkleg þráhyggjuást

Sú ást sem hann virtist hafa lagt á unnustu Hannesar Þórs hefði einkennst af sjúklegri þráhyggju á geðrofsgrunni. Hann hefði dregið sig inn í einsemdina og ætlað sér að klára sitt líf upp á eigin spýtur. Hjá honum hefði sprottið upp mjög sjúkleg hugsun um að ryðja Hannesi úr vegi til að geta notið unnustu hans. Gunnar Rúnar hefði sett jafnaðarmerki milli hugsunar og verknaðar. Eftir verknaðinn hefði hann trúað því að bara ef hann hristi hausinn nógu lengi myndi hann losna við óhugnaðinn.

Tómas Zoëga geðlæknir tók að mestu í sama streng og Helgi. Hann rakti hvernig Gunnar Rúnar myndaði félagsleg tengsl eftir að unnusta Hannesar Þórs, sem var bekkjarsystir hans, bauð honum í partí heima hjá Hannesi og tók upp kunningsskap við hann. Gunnar Rúnar hefði orðið ástfanginn af unnustunni og borið eins konar ástaræði til hennar. Tómas greindi frá því að Gunnar Rúnar hefði sagt sér að hann hefði verið „brosandi og liðið vel" þegar hann var á leiðinni að bana Hannesi.

Varð hamslaus í viðtali

Kristinn Tómasson geðlæknir greindi frá því að hann og Tómas hefðu orðið „hálfhræddir" við Gunnar Rúnar þegar hann brotnaði saman í viðtali við þá. Hann hefði orðið hamslaus. Allir geðlæknarnir voru á einu máli um að Gunnar Rúnar gæti verið hættulegur umhverfi sínu í núverandi ástandi.

jss@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins

Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni.

Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars

Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag.

Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar

„Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn.

Morðmálið lagt í dóm

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið.

Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal

Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum.

Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins

Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu.

Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum

Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu.

Gunnar Rúnar með tvískiptan persónuleika - afar umdeild röskun

Samkvæmt niðurstöðum Helga Garðars Garðarsson, geðlæknis, þá er Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni, með tvískiptan persónuleika. Vísir ræddi við Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni göngudeildar og bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, en hún segist hafa séð örfá tilvik á sínum 25 ára ferli.

„Þú ert svo mikill aumingi“

Saksóknari telur að ekki hafi verið sýnt fram á ósakhæfi Gunnars Rúnars Sigurþórssonar og krefst þess að hann verði dæmdur fyrir morðið á Hannesi Helgasyni í 16 ára fangelsi. Öll fjölskylda Hannesar fylgdist með aðalmeðferðinni sem fór fram í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×