Innlent

Starfslokasamingur sparisjóðsstjóra: „Það á að taka mig af lífi"

SB skrifar
Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri.
Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri.

Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, segir fréttir um starfslokasamning sinn hjá Sparisjóði Keflavíkur opinbera aftöku. Honum hafi verið stillt upp við vegg og fréttirnar skaði bæði hann og hans fjölskyldu.

„Það virðist vera bein lína úr sparisjóðnum inn í sjónvarp og þar eru fréttir í upphrópunarstíl. Þetta er opinber aftaka sem á að fara fram á mér og minni fjölskyldu," segir Geirmundur.

Geirmundur Kristinsson lét af störfum sem sparisjóðsstjóri árið 2009. Í frétt Rúv í gærkvöldi kom fram að upphaflegur starfslokasamningur Geirmundur hafi vakið furðu og hneykslan og verið breytt.

Í samningnum hafi verið ákvæði um að 60 milljón króna skuld sonar Geirmundar yrði afskrifuð og flutt í einkahlutafélag, hann myndi fá 6 mánaða laun í eingreiðslu þegar hann léti af störfum, honum yrði greiddur ferðakostnaður vegna afmælis síns og starfa áfram við hlið nýs sparissjóðsstjóra til áramóta á fullum launum.

Kristján Gunnarsson, verkalýðsforingi á Suðurnesjum, sagði í fréttunum í gær að það hefði verið yfirsjón að skrifa undir samninginn, hann hefði ekki lesið hann og þegar hann hafi komist að efni hans hafi samningurinn verið leiðréttur.

Geirmundur segir mikilvægt að halda því til haga að sá samningur sem talað hafi verið um í fréttum Rúv hafi aðeins verið drög að samningi. „Þetta voru drög að samningi og mér finnst mjög undarlegt að birta slík drög í fréttum." Spurður út í hvort rétt sé að hann hafi farið fram á afskriftir á skuld sonar síns segir Geirmundur:

„Ég get ekki neitað því sem kemur fram í þessum drögum. En ég get staðfest að slíkt ákvæði er ekki í mínum starfslokasamningi í dag."

Geirmundur segir fréttirnar beinast að hans persónu. „Það á að taka mig af lífi og það er búið að því." Hann segist vilja bíða með að tjá sig nákvæmlega um efnisatriði málsins þar til hann hafi leitað sér lögfræðiaðstoðar:

„Ég vil bara fá að vera í friði með minni fjölskyldu."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×