Innlent

Margar konur nefndar til sögunnar sem næsti biskup

Síðan Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands tilkynnti við upphaf síðasta kirkjuþings að hann hygðist láta af embætti á næsta ári hefur legið fyrir að biskupskjör fer fram á næsta ári.

Rétt til að kjósa biskup hafa biskupar og prestar þjóðkirkjunnar, kennarar við guðfræðideild Háskólans og margir leikmenn, en sú nýbreytni verður nú að formenn sóknarnefnda og varaformenn þeirra á suðvesturhorninu hafa nú atkvæðisrétt, svo hátt í 500 manns taka þátt í kjörinu.

Þegar er tekið að skrafa um hugsanlega frambjóðendur, þó enginn hafi enn lýst formlega yfir áhuga á embættinu. Fréttastofa hafði samband við fjölda presta og grófst fyrir um hugsanlega kandídata, en áberandi fjöldi kvenna var nefndur. Sumir prestarnir töldu að meðbyr væri með konum, þótt óvíst væri hvort kona yrði biskup nú eða næst.

Margir voru þó sammála um að næsti biskup yrði að hafa almenna tilhöfðun til almennings.

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við guðfræðideild Íslands, var oft nefnd, en sjálf segir hún í samtali við fréttastofu að komið hafi verið að máli við hana og hún beðin um að íhuga að gefa kost á sér. Hún er þó þeirrar skoðunar að prinsippumræða um biskupsembættið þurfi að fara fram áður en umræða hefst um nöfn frambjóðenda.

Auk hennar voru nefndar þær séra Sigríður Guðmarsdóttir í Grafarholtsprestkalli, Jóna Hrönn Bolladóttir í Garðasókn og Agnes M. Sigurðardóttir sóknarprestur í Bolungarvík, sem sóttist eftir embætti vígslubiskups í Skálholti við síðustu kosningu.

Þá var nafn stjórnlagaráðsmannsins Arnar Bárðar Jónssonar í Neskirkju nefnt, auk kollega hans í sömu kirkju, Sigurðar Árna Þórðarsonar, en báðir sögðu þeir að vinir þeirra hafi lagt til við þá að gefa kost á sér og þeir hafi það til íhugunar.

Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, mun ekki hafa hug á að sækjast eftir embættinu að svo stöddu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×