Innlent

Færri börn koma í kirkjuna fyrir jólin en áður

Meirihluti þjóðarinnar eða rúm sextíu prósent eru á móti því að takmarka aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi frá því sem verið hefur. Þetta sýnir ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Dómkirkjuprestur segir færri börn koma í skipulagðar ferðir í kirkjuna fyrir jólin en áður.

Reykjavíkurborg samþykkti í október reglur sem kveða meðal annars á um að trúar- og lífsskoðunarfélög skuli ekki stunda starfsemi sína innan veggja leik- og grunnskóla í borginni né heldur á starfstíma frístundaheimila. Þetta á við um allar heimsóknir í trúarlegum tilgangi. Ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir að meirihluti þjóðarinnar eða rúm sextíu prósent eru á móti því að takmarka aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi frá því sem verið hefur.

Hringt var í rúmlega átta hundruð manns, sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá, dagana sjöunda og áttunda desember. Tæp 99% tóku afstöðu þegar spurt var hversu fylgjandi eða andvígur ertu því að takmarka aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi frá því sem verið hefur?

Tæp 18% sögðust mjög fylgjandi því, 13% frekar fylgjandi, tæp 18% sögðust hlutlaus, tæp 16% sögðust frekar andvíg og tæp 36% mjög andvíg. Af þeim sem voru annað hvort með eða á móti þá sögðust 38% vera hlynnt því að takmarka aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi en 62% andvíg því.

Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir nýjar reglur borgarinnar hafa haft áhrif á heimsóknir barna í kirkjuna.

„Skólarnir koma ekki með skipulögðu hætti eins og þeir gerðu áður, skólarnir í sókninni. Það var hér tvo þrjá daga á aðventunni þá voru hópar að koma en nú ákváðu skólarnir að koma ekki og ég hygg að það sé fyrst og fremst út af því að það er eins og dómgreind skólafólksins sé tekin úr sambandi af nefnd hjá borginni sem telji sig vita betur hvernig skólastarfið eigi að fara fram," segir Hjálmar.

Hluti barnanna komi þó áfram í kirkjuna með foreldrum sínum.

„Hins vegar er svarið það að það er töluvert fleira fólk sem kemur með börnin sín í barnamessurnar. Það er eins og það sé svarið við því að þau komi ekki á vegum skólans að fólkið kemur þá frekar með þau sjálft."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×