Innlent

Kvikmyndaskólinn skuldar 38 milljónir í laun

Hilmar Oddsson, skólastjóri Kvikmyndaskólans
Hilmar Oddsson, skólastjóri Kvikmyndaskólans
Kvikmyndaskóli Íslanda skuldar 38 milljónir króna í laun til starfsmanna sinna og segir stjórn skólans að þær skuldir verði hvorki umflúnar né afskrifaðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í tilefni af því að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að semja ekki við skólann fyrr en Ríkisendurskoðun hefur lokið heildarútttekt á stöðu hans.

Samkvæmt ráðuneytinu hefur skólinn ekki getað sýnt fram á að „að hann geti uppfyllt skilyrði reglugerðar um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi"

Svandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur lagt til við stjórn Kvikmyndaskólans þrjár leiðir sem Ríkisendurskoðun bendir á til að leysa vanda skólans. Ein þeirra er að afskrifa skuldir.

Í yfirlýsingu frá stjórn skólans segir þetta vera „... leið sem stjórnendur skólans geta ekki hugsað sér að fara þar sem þeir sem helst eiga inni hjá skólanum eru starfsmenn hans og velunnarar." Í því sambandi benda stjórnarmenn á þær 38 milljónir sem skólinn skuldar í laun.

Þá beinir ráðherra því til eigenda skólans að þeir komi með nýtt fé inn í reksturinn. Stjórnarmenn segja þessa leið verða reynda ef einhver lausn fæst hjá ráðuneytinu fyrst. „Við núverandi aðstæður liggur í hlutarins eðli að hvorki bankastofnanir né hugsanlegir fjárfestar gætu hugsað sér að leggja skólanum lið þegar alls óvíst er hvort hann fái starfsleyfi í framtíðinni," segir í yfirlýsingunni.

Þriðja tillagan til að leysa vanda skólans vera þá að ríkið leggi til aukið fé í reksturinn. „ Þessa leið hefur skólinn óskað eftir að farin yrði og stóð í þeirri trú að komið væri að afgreiðslu hennar nú nokkrum dögum fyrir skólasetningu. Þess í stað er stjórnendum skólans sagt að málefni hans hafi í raun verið lögð í hendur Ríkisendurskoðunar sem muni nú taka sér sinn tíma til að skoða betur málefni skólans. Á meðan eiga 160 nemendur, rúmlega 100 kennarar og allir aðrir starfsmenn skólans að bíða og vona að Ríkisendurskoðun veiti sína syndaaflausn," segir í yfirlýsingu stjórnarmanna.

Stjórn skólans segir ómögulegt fyrir hann að starfa án viðurkenningar ráðuneytisins, meðal annars því þá geti nemendur hans ekki sótt um lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×