Íslenski boltinn

Gummi Ben. kominn með KSÍ-A þjálfaragráðu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gummi Ben. er í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Breiðablik
Gummi Ben. er í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Breiðablik
Knattspyrnusamband Íslands útskrifaði nýverið 35 þjálfara með A-þjálfararéttindi. Réttindin eru þau hæstu sem veitt eru hérlendis og tekin gild um alla Evrópu.

Alls eru nú 138 þjálfarar á Íslandi með KSÍ-A réttindin auk þess sem átta þjálfarar hafa náð sér í UEFA-Pro gráðuna.

Meðal þjálfara sem útskrifuðust eru Guðmundur Benediktsson og Helena Ólafsdóttir. Nánar á heimasíðu knattspyrnusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×