Körfubolti

Pavel: Ég á heiminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Manni líður bara eins og ég eigi heiminn,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, eftir að lið hans hafði hampað Íslandsmeistaratitlinum í Iceland-Express deild karla. KR vann Stjörnuna 3-1 í einvíginu um titilinn stóra.

„Þetta er búið að vera rosalegt ferðalag fyrir mig síðan ég kom heim og mér hefur liðið svo frábærlega hjá þessum klúbb“.

„Þetta var tilfinningaþrungið fyrir mig þar sem ég er kannski komin að ákveðnari endastöð,“ sagði Pavel, en hann gaf það í skyn að leikmaðurinn væri líklega á leiðinni frá félaginu og þá má fastlega gera ráð fyrir því að hann sé á leiðinni erlendis.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum

KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1.

Fannar: Tilfinningin alltaf betri og betri

Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti í kvöld Íslandsmeistarabikarnum á loft í þriðja sinn á ferlinum - ávallt með KR. Hann varð Íslandsmeistari í fimmta sinn alls en hann náði þeim áfanga tvívegis er hann spilaði með Keflavík.

KR Íslandsmeistari 2011 - myndir

Það var glatt á hjalla hjá KR-ingum í Ásgarði í gær en þá varð körfuboltalið félagsins Íslandsmeistari eftir afar sannfærandi sigur á Stjörnunni. KR vann einvígi liðanna, 3-1.

Finnur: Það var komin tími á mig

„Þetta er yndisleg tilfinning, ég er búin að horfa á bræður mína báða taka þennan titil, en núna var komið að mér,“ sagði Finnur Atli Magnússon, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld eftir að hafa unnið einvígið 3-1.

Teitur: KR-ingarnir bara betri

Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að betra liðið hafi unnið rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en KR varð í kvöld meistari eftir sigur á Stjörnunni, 3-1, í lokaúrslitunum.

Marcus: Frábært að spila fyrir framan þetta fólk

„Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður,“ sagði Marcus Walker, leikmaður KR, eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. KR varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í einvíginu.

Brynjar um Walker: Stórkostlegur

"Hann er stórkostlegur og það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig honum óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið.“

Brynjar Þór: Auðveldasti titillinn

Brynjar Þór Björnsson varð í kvöld Íslandsmeistari í þriðja sinn með KR og segir hann þennan titil hafa verið þann auðveldasta á ferlinum.

Hrafn: Ég svíf um á skýi

„Ég er bara í skýjunum og svíf bara um,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deilda karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×