Lífið

Fékk innblástur frá Brian Eno í Íslandsheimsókn

Ben Frost og Brian Eno áttu góðar samverustundir hér á landi. Eno er væntanlegur aftur til landsins síðar á árinu.
Ben Frost og Brian Eno áttu góðar samverustundir hér á landi. Eno er væntanlegur aftur til landsins síðar á árinu.
„Hann er algjör snillingur. Það er ótrúlega gaman að vera í kringum hann," segir ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost sem hefur starfað á Íslandi undanfarin ár.

Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn heimsfrægi Brian Eno fór af landi brott í gær eftir að hafa dvalið hér í fimm daga sem leiðbeinandi Frosts. Fundur þeirra var hluti af Rolex-verkefninu þar sem sex listamenn hvaðanæva að úr heiminum fá að starfa undir handleiðslu þekktra listamanna í ár. „Við spjölluðum saman og reyndum að finna grundvöll fyrir samstarfi," segir Frost sem gaf síðast út plötuna By the Throat hjá íslenska útgáfufyrirtækinu Bedroom Music. Þeir hittust bæði heima hjá honum og í hljóðverinu Gróðurhúsinu. „Við fórum út á land nokkrum sinnum. Við fórum á Vík og fleiri staði og það var gaman að koma á svörtu strendurnar á Suðurlandi. Það er alltaf gaman að sýna fólki landið."

Frost segir heimsókn Eno aðeins byrjunina á samstarfinu og hann ætli að koma aftur til landsins á árinu. Enn á eftir að koma í ljós hvort þeir muni semja tónlist saman. „Ég fæ innblástur frá honum bara með því að vera í sama herbergi og hann og tala við hann. Vonandi vex eitthvað út frá þessu," segir Frost og játar að það sé mikill heiður að fá að starfa með Eno. Seinna á árinu er fyrirhuguð viðamikil kynning á Rolex-verkefninu í Kína þar sem félagarnir hittast aftur og bera saman bækur sínar.

Hinn þrítugi Ben Frost er ánægður með samstarfið við Eno en annað mál hvílir þó þungt á honum. Hann er ekki enn kominn með dvalarleyfi á Íslandi þrátt fyrir að hafa verið búsettur hér í fimm ár og tala reiprennandi íslensku. Hann er að vonum afar ósáttur við gang mála. „Ég er að kynna íslenska tónlist en er samt enn þá fastur í þessu. Mig langar bara að ljúka þessu máli."

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×