Viðskipti innlent

Ævisparnaður hjá Kaupþingi varð að fimm þúsund krónum

Séreignasjóður starfsfólks Kaupþings fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Þegar skilanefnd tók bankann yfir í október 2008 gufaði sparnaðurinn upp. Þeir starfsmenn bankans sem hér eru á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar. Fréttablaðið/gva
Séreignasjóður starfsfólks Kaupþings fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Þegar skilanefnd tók bankann yfir í október 2008 gufaði sparnaðurinn upp. Þeir starfsmenn bankans sem hér eru á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar. Fréttablaðið/gva

Stór hluti starfsfólks gamla Kaupþings tapaði svo gott sem öllum viðbótarlífeyrissparnaði sínum sem það átti í séreignarsjóði Kaupþings fyrir starfsmenn. Sjóðurinn fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Í lok september 2008 voru í sjóðnum tveir milljarðar króna. Þegar skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók lyklavöldin yfir í Kaupþingi í annarri viku október 2008 varð viðbótarlífeyrissparnaðurinn að engu.

Yfirstjórn Kaupþings stofnaði sjóðinn árið 2002 og var starfsfólki í sjálfsvald sett hvort það lagði fyrir í sjóðinn. Enginn sérstakur ávinningur var því með fjárfestingu í honum annar en sá að tvinna saman hagsmuni starfsfólks og Kaupþings.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að þegar halla tók undan fæti á hlutabréfamarkaði árið 2008 hafi stjórnendur bankans hvatt starfsfólk til að færa viðbótarlífeyrissparnað sinn yfir í séreignarsjóðinn. Undir það síðasta var þrýstingurinn allnokkur, jafnt frá stjórnendum sem öðru starfsfólki. Þeim sem ekki höfðu flutt sparnað sinn yfir var brigslað um að styðja ekki við bankann.

Dæmi eru um að starfsmenn Kaupþings sem hófu störf hjá Búnaðarbankanum fyrir tíu til fimmtán árum og áttu nokkurra milljóna króna uppsafnaðan viðbótarlífeyrissparnað hjá Lífeyrissjóði bankamanna hafi látið undan þrýstingi frá samstarfsfólki sínu og flutt sparnað sinn yfir í séreignarsjóðinn nokkrum dögum fyrir fall bankans.

Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Kaupþings leituðu ráða hjá Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) vegna málsins skömmu eftir fall bankans og könnuðu hvort þeir gætu gert kröfu í bú hans. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri SSF, segir ekki hægt að gera kröfu um séreignarsparnað.

Séreignarsjóður starfsfólks Kaupþings er enn starfandi en fyrirhugað er að slíta honum. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka eru nú 9,5 milljónir króna í séreignarsjóði starfsmanna Kaupþings. Áður en til slita kemur verður eign sjóðsins dreift á meðal sjóðsfélaga. Miðað við að þeir séu jafn margir og í lok september 2008 fær hver um 5.463 krónur, sem verða fluttar í annan séreignarsjóð. jonab@frettabladid.is












Tengdar fréttir

Athugasemd frá Arion banka

Arion banki vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemd við forsíðufrétt Fréttablaðsins í morgun:





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×