Innlent

Rykið úr gosinu alveg ógeðslegt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarney þurfti að hylja vit sín í gær. Nú er búið að senda grímur til þeirra.
Bjarney þurfti að hylja vit sín í gær. Nú er búið að senda grímur til þeirra.
„Þetta var alveg svakalegt hérna í gær. Það var bara myrkur eins og þegar maður er að fara að sofa á kvöldin, segir Bjarney Sigvaldadóttir, bóndi á Bakkakoti við Kirkjubæjarklaustur. Hún og Torfi Jónsson eiginmaður hennar voru með barnabörnin hjá sér þegar að gosið hófst í Eyjafjallajökli og hlaupið kom í kjölfarið. Stelpurnar litlu, sem eru tveggja og sex ára, komust hins vegar yfir Markarfljót áðan og því allar líkur á að þær komist heim til sín í Reykjavík í dag.

Bjarney segir að það sé ekki sama myrkrið í dag og var í gær. „En það var verið að koma með grímur og gleraugu þannig að þeir búast við einhverju," segir Bjarney. Það er björgunarsveitin sem sér um að dreifa hlífðarbúnaðinum.

Barnabarnið var ekkert á þeim buxunum að ætla að kyssa Torfa afa sinn eftir að hann kom úr smalamennsku.


Bjarnney og eiginmaður hennar, Torfi Jónsson, eru með 22 mjólkandi kýr og 300 kindur. Þeim hefur tekist að koma öllum dýrunum á hús og því eru þau ekki í hættu.

Bjarney segir að rykið sé alveg ógeðslegt og smjúgi inn um öll göt og glugga. „Ég var að vinna í álverinu áður en við komum hingað og þetta er bara voðalega svipað og rykið þar," segir Bjarney.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×