Viðskipti innlent

Sigurður með mest undir eða 7,8 milljarða í riftuninni

Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, nú eftirlýstur af Interpol, er með mest undir af þeim 80 fyrrum starfsmönnum Kaupþings sem fengu í morgun tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þeim. Sigurði er gert að greiða rúmalega 7,8 milljarða kr.

 

Næstu á eftir honum á listanum, hvað fjárhæðir varðar, er Ingvar Vilhjálmsson framkvæmdastjóri markaðsviðskipta með rétt rúma 5 milljarða kr. sem hann þarf að standa skil á. Í þriðja sæti listans er síðan Ingólfur Helgason bankastjóri með tæpa 3,5 milljarða kr.

 

Eins og fram kemur í tilkynningu frá slitastjórn Kaupþings voru það 20 lykilstjórnendur í bankanum sem fengu niðurfellda tæplega 30 milljarða kr. af persónulegum ábyrgðum sínum eða um 90% af heildarupphæðinni.

 

Lista með heildarlánum til starfsmanna Kaupþings eins og þau stóðu 2008 má finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og eru tölurnar hér teknar af þeim lista.

 

Efstu menn á þessum lista, í fjárhæðum, eru auk framangreindra:

 

4. Steingrímur P. Kárason stjórnandi áhættustýringar með tæpa 2,3 milljarð kr.

5. Hannes Frímann Hrólfsson aðstoðarframkvæmdastjóri með tæpa 2,3 milljarð kr.

6. Guðný Arna Sveinsdóttir yfir fjármála- og rekstrarsviði með rúmlega 1,5 milljarða kr.

7. Þorlákur Runólfsson forstöðumaður einkabankaþjónustu með tæplega 1,5 milljarð kr.

8. Frosti Reyr Rúnarsson forstöðumaður verðbréfamiðlunnar með tæplega 1,4 milljarð kr.

9. Guðni Níels Aðalsteinsson framkvæmdastjóri fjárstýringar með tæplega 1,3 milljarð kr.

10. Kristján Arason framkvæmdastjóri einkabankaþjónustu með rúmlega 1,2 milljarða kr.

11. Bjarki H. Diego framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs með rúmlega 1,1 milljarður kr.

12. Svali H. Björgvinsson framkvæmdastjóri starfsmannasviðs með 772 milljónir kr.

13. Stefán Ákason forstöðumaður skuldabréfamiðlunar með 707 milljónir kr.

14. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstöðumaður eignastýringasviðs með 558 milljónir kr.

15. Helgi Sigurðsson yfirlögfræðingur með 549 milljónir kr.

 

Aðrir starfsmenn en hér um ræðir voru með minna en 500 milljónir kr. í lánum frá bankanum og eru því ekki á lista rannsóknarnefndar Alþingis.

 

Tekið skal fram að í tilkynningu skilanefndar Kaupþings segir að einnig eigi að reyna að rifta ábyrgðum þar sem starfsmennirnir höfðu flutt lánin yfir í eignarhaldsfélög. Þar efst trónir Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri með niðurfellingu upp á tæpa 5,9 milljarða kr.











Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×