Innlent

Að ná meirihluta er eins og að smala köttum

Jóhanna ásamt samstarfsmanni sínum, Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra.
Jóhanna ásamt samstarfsmanni sínum, Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, boðaði sérstaka rannsóknarnefnd um einkavæðingu bankanna tæki núverandi rannsóknarnefnd ekki á því máli með skýrum hætti í óbirtri skýrslu.

Þetta sagði hún í ræðu sinni á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem er haldin á Hótel Loftleiðum. Þá sagði hún að það færi of mikill tími í að smala saman meirihluta á Alþingi, slíkt væri eins og að smala köttum.

„Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þessu verða gerð skil í rannsóknarskýrslunni, en ég hef þegar ákveðið að verði þau ekki ítarleg mun ég beita mér fyrir setningu laga um sérstaka rannsókn á einkavæðingunni," sagði Jóhanna sem vill að einkavæðingin verði gerð upp með ítarlegum hætti.

Þá vék Jóhanna einnig að samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn í ræðunni.

„það heldur engin ríkisstjórn það út til lengdar að búa við óvissan og ótraustan meirihluta í stórum og erfiðum málum. Á óvissu- og erfiðleikatímum er það lykilatriði að ríkisstjórn hafi traust og fast land undir fótum," sagði hún og bætti við:

„Hoppandi meirihlutar á Alþingi duga skammt við aðstæður eins og okkar þjóð gengur í gegnum og of mikil orka og tími fer að smala þeim saman og ná málum í gegn. Ein flokksystir okkar orðaði þetta ágætlega þegar hún sagði að þetta væri eins og að smala köttum."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×