Handbolti

Lykilmenn bikarmeistaranna fengu hvíld á móti Víkingi í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir skorðai átta mörk fyirr Stjörnuna í kvöld.
Elísabet Gunnarsdóttir skorðai átta mörk fyirr Stjörnuna í kvöld. Mynd/S

FH-konan Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Stjörnukonan Alina Tamasan voru ekki áberandi í markaskoruninni í 27-18 sigri Stjörnunnar á FH í Kaplakrika í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld. Lykilmenn bikarmeistara Fram fengu hinsvegar hvíld í 19 marka sigri á botnliði Víkings í kvöld.

Þær eru báðar meðal markahæstu leikmanna deildarinnar en á meðan Ragnhildur komst ekki á blað þá skoraði Alina bara eitt mark í leiknum. Ragnhildur var búin að skora 158 mörk í 19 leikjum (8,3 í leik) fyrir leikinn á meðan Alina var með 131 mark í fyrstu 17 leikjum sínum (7,7 í leik).

Einar Jónsson, þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Fram leyfði sínum lykilmönnum að hvíla sig í 37-18 marka sigri á botnliði Víkinga í kvöld. Leikmenn eins og Stella Sigurðardóttir, Karen Knútsdóttir, Pavla Nevarilova, Marthe Sördal og Hildur Þorgeirsdóttir voru ekki á skýrslu í leiknum í kvöld.

Úrslit og markaskorarar í N1 deild kvenna í kvöld:



KA/Þór-Valur 13-31

Mörk KA/Þór: Martha Hermansdóttir 3, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3

Ásdís Sigurðardóttir 3, Emma Havin Sardardóttir 1, Kolbrún Einarsdóttir 1, Inga Dís Sigurðardóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1.

Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 6, Rebekka Skúladóttir 3, Hrafnhildur Skúladóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Katrín Andrésdóttir 2, Kristín Guðmundsdóttir 2, Karólína Gunnarsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Arndís Erlingsdóttir 2, Nína K. Björnsdóttir 2, Soffía Gísladóttir 1

FH-Stjarnan 18-27 (10-13)

Mörk FH: Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 4, Arnheiður Guðmundsdóttir 4, Sigrún Gilsdóttir 3, Agnes Ósk Egilsdóttir 2, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Elísabet Gunnarsdóttir 8, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Þorgerður Anna Atladóttir 4, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 3, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 2, Alina Tamasan 1, Indíana Nanna Jóhannsdóttir 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1

Aðalheiður Hreinsdóttir 1.

Fram-Víkingur 37-18 (21-7)

Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 10, Eva Hrund Harðardóttir 6, Arnar Eir Einarsdóttir 5, Hafdís Hinriksdóttir 5, Anna Friðriksdóttir 3, Anna

María Guðmundsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 2, Karólína Torfadóttir 1, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Hafdís Iura 1.

Mörk Víkings: Guðríður Ósk Jónsdóttir 4, Fríða Jónsdóttir 4, Bergliond Halldórsdóttir 3, María Karlsdóttir 3, Helga Lára Halldórsdóttir 2, Díana

Ágústsdóttir 2.

Fylkir-Haukar 25-28 (10-13)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×