Innlent

Stendur ekki til að yfir­heyra Bjarna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, hefur ekki verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum Sjóvár og Milestone. Bjarni hafði milligöngu um að félagið Vafningur tæki tíu milljarða króna lán hjá Sjóvá. Lánið var aldrei greitt til baka.

DV hefur fjallað nokkuð ítarlega um lánveitingar Sjóvár til eignarhaldsfélagsins Vafnings sem var í eigu Wernersbræðra og Einars og Benedikts Sveinssona. Málið tengist meintri ólögmætri veðsetningu bótasjóðs Sjóvar sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Um flókin viðskipti var að ræða sem að hluta til - samkvæmt DV - gengu út á að bjarga hlutabréfum þeirra bræðra í Glitni. Bjarni Benediktsson, sonur Benedikts Sveinssonar, kom að þessum viðskiptum en hann hefur ekki samkvæmt heimildum fréttastofu verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara og er það heldur ekki á dagskrá.

Wernersbræður áttu ásamt þeim Einari og Benedikt sjö prósenta hlut í Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt international. Þessi hlutur var hins vegar veðsettur hjá bandaríska fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þegar síga fór á ógæfuhliðina í íslensku efnhagslífi snemm árs 2008 hótaði bandaríski bankinn að leysa til sín þennan hlut nema til kæmi greiðsla upp á 15 milljarða króna. Til að mæta þessari kröfu fengu þeir bræður meðal annars rúmlega tíu milljarða króna lán frá Sjóvá gegn veði í Vafningi - en aðaleignir félagsins voru lúxus íbúðaturnar í Makaó.

Sjóvá þurfti að afskrifa þetta lán nokkrum mánuðum síðar eftir að í ljós kom að eignir Vafnings voru tvíveðsettar en Glitnir átti fyrsta kröfurétt. Eins og fram hefur komið þurfti ríkið svo að setja 12 milljarða króna inn í sjóvá á síðasta ári til að bjarga félaginu frá þroti.

Það var Bjarni Benediktsson sem fékk umboð til að veðsetja bréfin á sínum tíma. Bjarni hefur áður lýst því yfir í fjölmiðlum að hann hafi séð um þessi viðskipti þar sem ættingar hans hafi verið í útlöndum á þessum tímapunkti. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Bjarni ekkert óeðlilegt við sína aðkoma að þessu máli. Því sé það skiljanlegt að sérstakur saksóknari sjái ekki ástæðu til að yfirheyra hann vegna málsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×