Lífið

Hófsamar jólagjafir fyrirtækja

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Jólagjafirnar á góðærisárunum voru oft glæsilegar og íburðarmiklar og margir supu hreinlega hveljur við fréttum af því hvað leyndist í jólapökkum starfsmanna sumra fyrirtækja. Nú er öldin önnur.

Jólagjafir starfsmanna voru almennt minni í sniðum nú á kreppujólunum 2009. Hjá mörgum var þetta sáraeinfalt eins og hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar: Þeir fengu ekki neitt. Bréfberar stóðu í ströngu fyrir jólin og fengu hamborgarhrygg frá Póstinum auk bókar um Friðarsúlu Yokoar Ono.

Starfsmenn Símans fengu tíu þúsund króna úttekt í miðborginni auk tveggja miða á mann í Borgarleikhúsið.

„Nýju“ bankarnir voru jarðbundnari en þegar lánsféð vætlaði um pípurnar. Landsbankinn (NBI hf.) gaf starfsfólkinu matarkörfu. Kjöt og ostar voru meginuppistaðan þessi jólin. Starfsfólk Arion banka fékk einnig matarkörfu og Spurt að leikslokum spilið að auki. Íslandsbanki gaf starfsfólki sínu rifjárn og uppskriftabók sem starfsfólkið sjálft lagði til uppskriftir í.

Á meðan bankinn hét Glitnir fengu starfsmenn Kærleikskúlu frá Styrktar­félagi lamaðra og fatlaðra, en í ár var þeim boðinn afsláttur af kúlunni.

Magnús Scheving gaf sínu fólki í Latabæ flíspeysu í jólagjöf.
Útrásarfyrirtækin voru misfrumleg í ár. Starfsfólk Decode fékk tveggja hæða konfektkassa, starfsfólk Latabæjar fékk flíspeysu frá Cintamani, en tölvuleikjafyrirtækið CCP var á tæknilegu nótunum og gaf sínu fólki nýmóðins myndatökuvél af tegundinni The Flip.

Jólagjafir til starfsfólks Össurar voru smærri í sniðum en áður og í staðinn gaf fyrirtækið 2.000 kr. fyrir hvern og einn til jólaaðstoðar Rauða krossins. 

Starfsfólk Actavis á Íslandi fékk sams konar jólagjöf frá fyrirtækinu og undanfarin ár, 100.000 kr. í peningum. Upphæðin er sú sama fyrir alla, óháð starfsheiti. Þetta er orðin um tuttugu ára hefð hjá fyrirtækinu og upphæðin hefur verið hundrað þúsund krónur undanfarin ár.

Starfsmannafélag Actavis hefur einnig gefið starfsfólki plötu, bók eða eitthvað slíkt, en í ár var ákveðið að láta þau útgjöld heldur renna til góðgerðamála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×