Viðskipti innlent

Skuldir Landsvirkjunar nema 380 milljörðum

Um mitt ár 2009 námu heildarskuldir Landsvirkjunar 3,1 milljarði Bandaríkjadala eins og fram kemur í árshlutareikningi fyrirtækisins. Skuldirnar nema því um 380 milljörðum króna á núverandi gengi.

Þetta kemur fram á vefsíðu Landsvirkjunar þar sem leytast er við að svara ýmsum rangfærslum um stöðu fyrirtækisins á undanförnum vikum.

Á vefsíðunni segir að á móti þessu verður að meta eignirnar. Heildareignir Landsvirkjunar námu á sama tíma 4,5 milljörðum dollara eða sem nemur 557 milljörðum króna. Eigin fé Landsvirkjunar er því tæplega 180 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 31,2%. Þetta er meira eigin fé en hjá Íslandsbanka og nýja Kaupþingi samanlagt.

Uppgjör á fyrra helmingi þessa árs sýnir góðan hagnað og mikið fjárstreymi frá rekstri fyrirtækisins.

Meðal þeirra spurninga sem svarað er á vefsíðunni er sú að vegna skuldastöðu Landsvirkjunar er getum að því leitt að fyrirtækið sé í raun í eigu kröfuhafa.

Sem svar við þessu segir: „Rétt er að Landsvirkjun skuldar verulegt fé eftir að hafa þrefaldað framleiðslugetu fyrirtækisins frá árinu 1995 með byggingu Sultartangavirkjunar, Vatnsfellsvirkjunar og Hágöngumiðlunar, stækkunar virkjana við Búrfell, Blöndu og Kröflu, að ógleymdri Kárahnjúkavirkjun auk fjölmargra annarra smárra og stórra verkefna. Allt var þetta gert á grundvelli alþjóðlegrar fjármögnunar og án þess að nýtt eigið fé væri lagt til fyrirtækisins.

Eiginfjárstaða Landsvirkjunar er afar sterk miðað við velflest innlend fyritæki sem mörg hver hafa lent í erfiðleikum í kjölfar gengishruns krónunnar. Því er augljóst að fullyrðingin á ekki við nein rök að styðjast. Ef Landsvirkjun teldist vera í eigu kröfuhafa þá ætti hið sama við um nær öll önnur fyrirtæki hérlendis, bæði í ríkiseigu og einkaeigu.

Ef átt er við vandamál sem nú eru með erlenda fjármögnun þá hefur það ekkert með Landsvirkjun að gera. Landsvirkjun á laust fé að fjárhæð um 340 milljónir dollara eða sem nemur ríflega 40 milljörðum króna. Þetta fé dugar til að byggja tæplega tvær Búðarhálsvirkjanir. Erlendir lánsfjármarkaðir eru hins vegar lokaðir íslenskum aðilum vegna sérstakra aðstæðna sem snúa að íslenska ríkinu. Á meðan ástandið er með þeim hætti er óábyrgt af hálfu Landsvirkjunar að ráðast í nýjar framkvæmdir nema að fyrirtækið hafi fjármagnað þær að fullu með nýjum langtímalánum. Að því er unnið.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×