Innlent

Framsóknarmenn fengu ráð frá vogunarsjóði

Fulltrúar frá vogunarsjóðnum Boreas Capital veittu Framsóknarmönnum ráðgjöf þegar þeir funduðu með norskum þingmönnum í vikunni. Sjóðurinn tengist meðal annars fyrrverandi eigendum Landsbankans. Formaður Framsóknarflokksins segir ekkert óeðlilegt við aðkomu þessara manna.

Vogunarsjóðurinn Boreas Capital var stofnaður í Reykjavík júnímánuði árið 2007. Sjóðurinn átti í verulegum viðskiptum við Straum Burðarás en stærsti eigandi bankans var Björgólfur Thor Björgólfsson.

Frank Pitt, stjórnarformaður Boreas Capital og Ragnar Þórrisson, einn af eigendum sjóðsins fylgdu framsóknarmönnum til Noregs í vikunni þegar þeir heimsóttu þarlenda þingmenn. „Með okkur í för voru fjórir sérfræðingar í alþjóðafjármálum sem voru okkur til ráðgjafar. Meðal annars frá þessum vogunarsjóði var fulltrúi sem hafði bent okkur á það að Ísland stæði nú frammi fyrir verulegri ógn," sagði Sigmundur.

Sigmundur sagði fulltrúinn viti hvernig vogunarsjóðir starfi. „Hérna eru að endurtaka sig nákvæmlega það sama og gerðist í Argentínu þar sem voru veitt veruleg lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðir. Vogunarsjóðir sem höfðu komið sér þar fyrir tóku þá alla út á 45 mínútum. Landið sat eftir með skuldirnar."

Aðspurður hvort það hafi ekki verið óheppilegt að fyrrum viðskiptafélagar Björgólfs Thors hafi verið með fulltrúum Framsóknarflokksins á þessum fundum sagði Sigmundur: „Ég veit ekkert um hvort að einhverjir sem voru með okkur á þessum fundum hafi verið viðskiptafélagar Björgólfs Thors. Út í hvað eru menn komnir ef þeir ætla að hefja svona nornaveiðar. Þetta er bara Mcarthyismi. Þekktir þú einhvern tíman einhvern sem var bendlaður við útrásina. Þetta kann að vera færasta fólk okkar Íslendinga. Ætla menn að troða þetta allt niður í svaðið því þeir hafi hugsanlega þekkt einhvern sem var einhvern tímann með einhverjum útrásarmanni?"





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×