Innlent

Miðbaugsmaddaman dæmd fyrir hórmang

Catalina Ncogo var sýknuð af ákærum um mansal í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stundu en hún var hinsvegar dæmd fyrir að hafa haft viðurværi af vændi kvenna sem hún hélt úti í miðborg Reykjavíkur. Þá var hún einnig dæmd fyrir að hafa skipulagt og staðið að innflutningi af 400 grömmum af kókaíni til landsins frá Hollandi. Hún hlaut tveggja og hálfs árs fangelsi óskilorðsbundið fyrir brotið.

Finnur Bergmannsson var dæmdur fyrir að taka myndir af vændiskonunum með það að markmiði að auglýsa vændistarfsemina sem Catalina hélt úti.

Hlaut hann fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Lögmaður Catalinu, Sveinn Andri Sveinsson, sagði að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar Íslands.


Tengdar fréttir

Hótað í kjölfar umfjöllunar um vændi

Ungu konunni, sem sagði frá samskiptum sínum við Catalinu Ncoco, bárust hótanir eftir að viðtal við hana var birt á Stöð 2 í gær.

Miðbaugsmaddaman neitar sök

Catalina Mikue Ncogo, íslensk kona ættuð frá Miðbaugs-Gíneu, neitaði sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hún hefur verið ákærð fyrir mansal og vændisstarfsemi.

Miðbaugs-maddaman er laus úr gæsluvarðhaldi

Catalina Mikue Ncogo, stundum hefur verið kölluð Miðbaugs-maddaman, er laus úr gæsluvarðhaldi. Catalina var grunuð um aðild að nokkuð umfangsmiklu smygli á fíkniefnum hingað til lands og sat í gæsluvarðhaldi þar til í gær vegna þess. Lögreglan fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald en hún mun sæta farbanni til 10 júní.

Ákært fyrir vændi og mansal í fyrsta skipti

Catalina Mikue Ncogo, íslensk kona ættuð frá Miðbaugs-Gíneu, hefur verið ákærð fyrir mansal og vændisstarfsemi. Henni er meðal annars gefið að sök að hafa blekkt unga konu til landsins og haldið henni hér í kynlífsánauð. Aldrei áður hefur verið ákært í mansals- eða vændismáli á Íslandi.

Miðbaugsmaddaman áfram í farbanni

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að Catalina Mikue Ncogo, stundum nefnd Miðbaugsmaddaman, verði áfram í farbanni allt þar til dómur fellur í máli hennar.

Miðbaugsmaddaman aftur í gæsluvarðhald

Catalina Mikue Ncoco sem komst í fréttirnar fyrr á þessu ári vegna vændishúsa sem hún hélt úti á höfuðborgarsvæðinu hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12.maí vegna gruns um umfangsmikið fíkniefnasmygl. Karl Steinar Valsson hjá fíkniefnadeild lögreglunnar vill ekki staðfesta að Catalina eigi í hlut en útilokar ekki að konan tengist belgískum burðardýrum sem handtekin hafa verið við komuna hingað til lands undanfarið.

Catalina aftur í gæsluvarðhald

Lögreglumál Catalina Mikue Ncogo, sem komst í fréttir vegna meints mansals fyrr á árinu, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12. maí. Hún er grunuð um aðild að nokkuð umfangsmiklu smygli á fíkniefnum hingað til lands.

Vændishús á Hverfisgötu

Lögreglan hefur til skoðunar meinta vændisstarfsemi sem fram fer í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík. Íbúar í húsinu eru orðnir langþreyttir á á starfseminni og segja hana hafa valdið þeim vökunætum í þrjár vikur.

Miðbaugsmaddaman beit lögreglumann í bakið

Sakamál gegn Catalinu Mikue Ncogo var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Henni er gefið að sök að hafa skipulagt innflutning á alls fjögur hundruð grömmum af kókaíni til landsins í tveimur aðskildum ferðum. Í annað skipti voru tvær konur teknar með efnin en í hitt skiptið karlmaður.

Catalina hefur tólf vændiskonur á sínum snærum

Catalina Ncoco, konan sem haldið hefur úti vændishúsum í Reykjavík undanfarin misseri, segist hafa tólf vændiskonur á sínum snærum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Í viðtali við Vikuna segist hún fara reglulega til Brasilíu til að finna konur til að stunda vændi hér á landi.

Áfram réttað yfir miðbaugsmaddömunni

Framhald aðalmeðferðar í máli Catalínu Ncoco og Finns Bergmannssonar fer fram eftir hádegi í dag. Catalina hefur verið ákærð fyrir mansal og að hafa haft tekjur af vændi kvenna auk þess að eiga þátt í fíkniefnainnflutningi. Þá hefur Finnur verið ákærður fyrir hlutdeild í brotunum.

Catalina enn í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur hefur vísað frá máli Catalinu Mikue Ncogo, sem kærði gæsluvarðhaldúrskurð yfir henni. Catalina er grunuð um aðild að fíkniefnamáli og að hafa haft tekjur af vændi ungra kvenna, sem hún hafi flutt mansali hingað til lands. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald til 27. febrúar. Málinu var vísað frá dómi og því stendur gæsluvarðhaldið.

Miðbaugsmaddaman laus úr gæsluvarðhaldi

Catalina Mikue Ncogo, sem er grunuðu um mansal og að hafa átt þátt í stórfelldum innflutningi til Holland var látinn úr gæsluvarðhaldi í dag en þar hafði hún setið í viku.

Miðbaugsmaddaman áfram í farbanni

Hæstiréttur Íslands staðfesti áframhaldandi farbann til 8. ágúst yfir Catalinu Mikue Ncoco sem er grunuð um aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli auk þess að hafa milligöngu um vændi og fá greitt fyrir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×