Viðskipti innlent

Húsleit hjá Milestone og Sjóvá

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hörður Arnarsson, forstjóri Sjóvá.
Hörður Arnarsson, forstjóri Sjóvá.

Embætti Sérstaks saksóknara er nú við húsleit í höfuðstöðvum Sjóvár. Þá var gerð húsleit í höfuðstöðvum Milestone, á heimilum allra fyrrverandi stjórnarmanna og á heimili Þórs Sigfússonar, fyrrverandi forstjóra Sjóvár. Hörður Arnarson, núverandi forstjóri Sjóvár, staðfestir að þar séu menn að safna gögnum og starfsmenn fyrirtækisins aðstoði þá eftir bestu getu.

Hörður segir að málið snúi ekki að tryggingarstarfsemi fyrirtækisins heldur fjárfestingastarfsemi sem félagið hefur verið í. Hörður segir að tilkynning verði send út vegna málsins á eftir.

Sérstakur saksóknari er nú að rannsaka stórfellt fjármálamisferli sem tengist starfsemi Milestone og Sjóvár.Rannsóknin snýr meðal annars að meintri misnotkun á bótasjóði Sjóvár en um sjóðinn gilda strangar reglur hvað varðar not á fé úr honum til fjárfestinga.

Talið er að Milestone hafi notað fé úr bótasjóðnum til að fjármagna m.a. kaupin á fjármálafélaginu Moderna í Svíþjóð. Upphaflega hét það félag Invik & Co. og þegar Milestone keypti það í apríl 2007 var kaupverðið um 70 milljarðar kr.

Og nefna má að nýlega komust fasteignakaup í Macau í fréttirnar en á þeim kaupum tapaði Milestone þremur milljörðum kr. Mun rannsóknin snúast um hvort fé úr bótasjóði Sjóvá hafi verið notað í þeim kaupum.
















Tengdar fréttir

Tilkynning frá Sjóvá: Húsleit tengist fjárfestingastarfsemi

jóvá hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna húsleitar embættis sérstaks saksóknara í höfuðstöðvum Sjóvar í morgun. Vill fyrirtækið árétta að sú rannsókn sem nú fer fram á málum er varða samskipti Sjóvár og Milestone, snýr eingöngu að fjárfestingatengdri starfsemi en hefur ekkert með tryggingastarfsemi Sjóvár að gera.

Leitað á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins

Einn af þeim fjölmörgu stöðum sem starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu húsleit á í dag er á starfsstöð Þórs Sigfússonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á skrifstofu samtakanna, en Þór hefur haft þar starfsaðstöðu í nokkrar undanfarnar vikur.

„Öll mín verk þola dagsbirtuna, eigendurnir sáu um fjárfestingar“

„Ég er feginn að þessi athugun fari fram, öll mín verk þola dagsbirtuna. Fjárfestingar félagsins voru fyrst og fremst á ábyrgð eigenda félagsins en mitt verkefni var fyrst og fremst vátryggingastarfseminn. Ég var þó ábyrgur fyrir allri starfsemi félagsins en mér er ekki kunnugt um að nokkuð ólöglegt hafi farið fram.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×