Innlent

Tveir af ellefu karlmönnum höfðu stöðu sakborninga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari í málinu. Mynd/E.Ól
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari í málinu. Mynd/E.Ól
Tveir af þeim 11 karlmönnum sem tóku þátt í kynlífsathöfnum með parinu sem kemur við sögu í kynferðisbrotamálinu, sem dæmt var í í Héraðsdómi í gær höfðu stöðu sakborninga á rannsóknarstigi málsins hjá lögreglu. Þetta segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari hjá ríkissaksóknara.

Málinu lyktaði með því að sambýlismaðurinn var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ýmis kynferðisbrot og önnur ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni. Meðal annars fékk hann ókunnuga karlmenn til að taka þátt í kynlífi með konunni.

Hulda Elsa segir að mennirnir hafi hins vegar verið leiddir sem vitni fyrir dóm. Hulda segir að konan hafi sjálf sagt að hún sjálf hafi ekkert verið að láta uppi um hvort hún væri neydd eða ekki til þeirra athafna sem fóru fram. „Þannig að það er ekki hægt að sýna fram á að þeir hafi vitað af þessu," segir Hulda Elsa.












Tengdar fréttir

Barnsmóðir ofbeldismannsins vildi vitna um kynóra hans

Barnsmóðir og fyrrum sambýliskona mannsins sem í gær var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir gróft líkamlegt ofbeldi vildi vitna um kynóra mannsins en fékk ekki. Þau bjuggu saman á árunum 1991 til 1998 og eignuðust saman dóttur.

Samfélagið þarf að senda kynferðisbrotamönnum ákveðin skilaboð

„Mér finnst jákvætt hvað dómurinn er þó langur. Það er kannski ekki að maður sé að gleðjast yfir þungri refsingu í fangelsi, mér finnst það svo kannski annað mál, en mér finnst mikilvægt að samfélagið gefi skilaboð til ofbeldismanna að svona sé ekki liðið," segir Thelma Ásdísardóttir Stígamótarkona um dóm yfir manni sem var dæmdur fyrir margvíslegt ofbeldi,

Ofbeldisfulli sambýlismaðurinn áfrýjar til Hæstaréttar

Karlmaðurinn sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni mun að öllum líkindum áfrýja dóminum til Hæstaréttar, að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns mannsins. Hann reiknar með að aðalkrafan verði að upphaflegu ákærunni verði vísað frá vegna vanhæfis ríkissaksóknara og sett saksóknara sem gaf út ákæruna í málinu.

Óvíst hvort að sambýliskona ofbeldismannsins nái sér að fullu

Kona mannsins sem fékk átta ára fangelsisdóm fyrir gróft líkamlegt ofbeldi hlaut mikið andlegt tjón eftir þær barsmíðar og misnotkun sem hún varð fyrir. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Settur saksóknari í málinu segir óvíst að hún nái sér að fullu.

Neyddi sambýliskonu sína til kynmaka með öðrum mönnum

Karlmaður var í dag dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Meðal annars neyddi maðurinn konuna til samræðis og annarra kynferðismaka við 11 aðra karlmenn. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að hafa ráðist á föður sinn og hótað honum lífláti. Manninum er gert að greiða konunni 3,8 milljónir króna í miskabætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×