Innlent

Rétthafar stefna Istorrent á ný

Svavar Lúthersson, eigandi Istorrent.is
Svavar Lúthersson, eigandi Istorrent.is

Aðstandendur Istorrent skráarskiptavefsins hafa sent frá sér fréttatilkynningu. Þar segir að rétthafasamtökin sem fengu lögbann sett á vefinn á sínum tíma hafi nú höfðað nýtt mál til staðfestingar lögbannsins og að svo virðist sem lögbannið sé því enn í gildi. Áður hafði héraðsdómur vísað málinu frá vegna vanreifunnar og tók Hæstiréttur undir þann dóm þann 8. maí síðastliðinn. Í tilkynningunni segir einnig að þolendur lögbannsins muni krefjast skaðabóta vegna tjóns sem þeir segjast hafa orðið fyrir vegna lögbannsins.

Tilkynningin í heild sinni fer hér á eftir:

„Máli fjögurra rétthafasamtaka gegn Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni vegna starfsemi vefsins torrent.is var vísað frá dómi 27. mars síðastliðinn vegna vanreifunar. Það var höfðað þann 23. nóvember 2007 eftir að

sýslumaðurinn í Hafnarfirði samþykkti að leggja lögbann á starfrækslu vefsins torrent.is þann 19. nóvember sama ár. Ákvörðun héraðsdóms var áfrýjað 2. apríl til Hæstaréttar sem staðfesti frávísunardóminn 8. maí.

Frávísun héraðsdóms mátti rekja til vanreifunar sem átti sér stað í málinu þar sem ekki var rætt nægilega um hvort að lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu ættu við um starfsemi vefsins eða ekki. Dómendum þóttu fyrrnefnd lög nægilega mikilvæg í þessu samhengi til að réttlæta frávísun þar sem túlkun þeirra gæti haft mikilvæg áhrif á úrslit málsins. Hæstiréttur staðfesti frávísunardóminn en af öðrum ástæðum. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að sóknaraðilar hafi í greinargerð sinni lýst því yfir að aðilaskipti hafi orðið sóknarmegin í málinu. Hæstiréttur taldi

slíka breytingu ekki heimila og vísaði málinu frá að því er varðaði sóknaraðilana Samtök myndréttarhafa á Íslandi, Framleiðendafélagið - SÍK og Félag hljómplötuframleiðenda. Eftir stóð þá aðild STEF en Hæstiréttur taldi að málið væri vanreifað hvað þann aðila varðaði því krafan væri víðtækari en svo að hún tæki aðeins til félagsmanna STEFs.

Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa rétthafasamtökin nú höfðað nýtt mál til staðfestingar lögbannsins sem, ef rétt reynist, hefur þá þýðingu að lögbannið gildir enn. Sætir það furðu enda er erfitt að sjá hvernig hægt verður að bæta úr þeim göllum, sem vörðuðu frávísun

málsins, í nýrri stefnu.

Þolendur lögbannsins munu krefjast skaðabóta vegna tjóns sem þeir urðu fyrir vegna lögbannsins."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×