Innlent

Vítisenglar sendir heim í fylgd lögreglumanna

Vítisenglarnir átta sem lögregla stöðvaði í Leifsstöð í gær við komuna til landsins voru fluttir til síns heima nú í morgunsárið. Tveir lögreglumenn munu fylgdu hverjum manni í flugvélunum. Sjö þeirra voru fluttir til Noregs en einn til Danmerkur og því munu alls sextán lögreglumenn halda utan með mótorhjólamönnunum.

Mennirnir höfðu hugsað sér að heimsækja Ísland til þess að samfagna með mótorhjólamönnum í Fafner Iceland sem halda upp á ellefu ára afmæli samtakanna.

Gríðarlegur viðbúnaður var í Leifsstöð í gær og biðu tugir lögreglumanna eftir Vítisenglunum sem komu flestir frá Noregi en einn kom með Kaupmannahafnarvélinni í gærkvöldi.

Jón Trausti Lúthersson, einn af forsprökkum Fáfnismanna sagði í viðtali við blaðamann Vísis að hann undraðist viðbrögð lögreglu, mennirnir væru aðeins komnir hingað til lands til þess að skemmta sér og ættu þeir fullan rétt á því.

Aðgerðirnar í gær fóru þó friðsamlega fram og veittu mótorhjólamennirnir enga mótspyrnu þegar lögregla handtók þá.


Tengdar fréttir

Tíu til tólf handteknir til viðbótar

Tíu til tólf karlmenn voru handteknir á Keflavíkurflugvelli nú í kvöld þegar seinni vélin frá Osló lenti klukkan 18.26. Þeir eru grunaðir um að vera meðlimir í mótorhjólasamtökunum Hells' Angels og samkvæmt heimildum Vísis voru nokkrir þeirra í leðurvestum merktum samtökunum. Von er á fleiri vítisenglum í kvöld þegar vélin frá Kaupmannahöfn lendir klukkan tíu.

Sjö vítisenglum synjað um leyfi til landgöngu

Íslensk lögregluyfirvöld synjuðu sjö norrænum félögum í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels um leyfi til landgöngu við komu þeirra til landsins í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fólkið, sem kom hingað til lands með tveimur vélum frá Noregi, hafi ætlað að sækja veislu, sem vélhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur boðað til í miðborg Reykjavíkur um helgina.

Vísir sýnir beint frá komu Hells Angels til Íslands

Eins og sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag er hópur Hells Angels manna frá Noregi væntanlegur til Íslands í dag. Hópur Fáfnismanna er á Keflavíkurflugvelli til þess að taka á móti mönnunum. Gert er ráð fyrir að lögreglan verði með töluverðan viðbúnað á Leifsstöð vegna þessa. Vísir verður á staðnum og verður hægt að horfa á beina útsendingu frá Leifsstöð hér á vefnum rétt eftir klukkan 16:00

Enn einn engillinn stöðvaður

Einn maður sem talinn er vera meðlimur í Vítisenglunum var handtekinn í Leifsstöð nú í kvöld en hann kom með flugi frá Kaupmannahöfn. Manninum verður að öllum líkindum synjað um landgöngu rétt eins og hinum vítisenglunum sjö sem teknir voru við komuna til landsins í dag.

Hert landamæraeftirlit á Leifsstöð vegna Hells Angels

Gripið var til herts landamæraeftirlits í Leifsstöð síðdegis í gær, að skipan dómsmálaráðherra, og stendur það fram á sunnudagskvöld. Hlutaðeigandi Shengen ríkjum hefur verið gert viðvart um þessa ráðstöfun í þágu þjóðaröryggis.

Vopn og fíkniefni fundust hjá Fáfnismönnum

Samkvæmt heimildum Vísis lagði lögreglan hald á tölvur, vopn og fíkniefni í húsleit sinni hjá mótorhjólaklúbbi Fáfnis í dag. Húsleitin tengist rannsókn á fíkniefnamáli en lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af málinu.

Björgólfsfeðgar vilja Fáfnismenn úr sínum húsum

Klúbbhús mótorhjólaklúbbsins Fáfnis, sem sérsveit lögreglu réðst inn í í gær, er í eigu eignarhaldsfélagsins Vatns og lands. Vatn og Land er í eigu Samson Properties sem aftur er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Myndband: Vísir vitni að Vítisenglahandtöku

Vísir var við landganginn þegar Vítisenglarnir komu með seinni vélinni frá Osló í kvöld. Vélin lenti klukkan 18:26 og voru hátt í 50 lögreglumenn sem tóku á móti hópnum. Vísir náði upp á myndband þegar einn Vítisenglanna var leiddur á brott í lgreglufylgd.

Húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna

Lögreglan í Reykjavík gerði húsleit í klúbbhúsi Fáfnismanna við Frakkastíg fyrir hálftíma síðan. Voru um tuttugu sérsveitarmenn sem brutust inn í húsið þar sem Jón Trausti Lúthersson meðlimur samtakanna var innan dyra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×