Innlent

Einkarannsókn á Hafskipsmálinu

Hópur sérfræðinga vinnur nú að viðamikilli rannsókn á allri umgjörð Hafskipsmálsins svokallaða, eins umdeildasta saka og

gjaldþrotamáls síðustu áratuga.

Hafskipsmennirnir Björgólfur Guðmundsson, Páll Bragi Kristjónsson

og Ragnar Kjartansson, eru að baki þessari ítarlegu úttekt sem staðið hefur mánuðum saman og er hvergi lokið. Við verkið starfar nærri einn tugur lögfræðinga og sagnfræðinga.

Ekki mun nauðsynlega vera stefnt að því að krefjast endurupptöku

dómsmálsins sjálfs heldur er öll umgjörð málsins undir í rannsókninni sem sögð er hafa að markmiði að allur sannleikurinn líti dagsins ljós og að hinir dæmdu menn fái uppreist æru.

Erfiðleikar voru í rekstri Hafskips á árinu 1985 og var félagið tekið til gjaldþrotaskipta. Gefnar voru út ákærur á hendur sautján mönnum.

Á endanum voru fjórir þeirra dæmdir til refsingar í Hæstarétti í júní 1991. Þyngsta dóminn hlaut Björgólfur Guðmundsson sem verið hafði forstjóri

Hafskips. Hann fékk tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm.

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs, vill hvorki játa

því né neita að hafin sé rannsókn fyrir Hafskipsmennina á málinu.

Ekki náðist í Pál Braga Kristjónsson sem er í orlofi erlendis.

Rannsóknarhópurinn mun bæði vera að skoða opinber gögn sem og ýmis gögn úr fórum manna sem tengdust Hafskipsmálinu og upplýsingar frá þeim.

Mikið mun þegar hafa komið fram sem Hafskipsmenn telja að varpi nýju og óvæntu ljósi á atburðarásina, til dæmis áður óbirt minnisblöð í stjórnsýslunni.

Rannsakaður er þáttur ýmissa stjórnmálamanna, opinberra embættismanna og forsvarsmanna í atvinnulífinu.

Fyrir nokkrum árum eignaðist félag Björgólfs Guðmundssonar ráðandi hlut í Eimskip. Búast má við að skjöl úr fórum þess félags séu meðal þeirra gagna sem nýtt verða til að draga upp heildarmynd af Hafskipsmálinu



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×