Innlent

Sautján sendiherrar á kjörtímabilinu

Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hafa sautján nýir sendiherrar verið skipaðir í embætti á vegum utanríkisráðuneytisins og tvö ný sendiráð opnuð. Framlag úr ríkissjóði til sendiráða Íslands hefur hækkað nokkuð til samræmis við það.

Í dag var ræðismannsskrifstofa Íslands opnuð í Færeyjum, sem að líkindum verður síðasta íslenska sendiskriftstofan sem tekin verður í notkun á erlendri grund þetta kjörtímabilið. Óhætt er að segja að umsvif utanríkisráðuneytisins hafi aukist nokkuð á þessum árum. Þannig var ný sendiskrifstofa opnuð í Nýju-Delí á Indlandi og önnur í Róm tekin í notkun eftir nokkurt hlé. Þá var sendiráð Íslands í Mapútó í Mósambík flutt til Pretoríu í Suður-Afríku. Frá árinu 2004 hafa svo skrifstofur Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Afríku haft stöðu sendiráða gagnvart þeim sex ríkjum þar sem þær starfa. Alls eru því 29 íslenskar sendiskrifstofur starfræktar erlendis.

Þegar kemur að sjálfum sendiherrunum kemur í ljós að síðastliðin fjögur ár hafa sautján slíkir verið skipaðir. Fyrstu fimmtán mánuði kjörtímabilsins skipaði Halldór Ásgrímsson fimm sendiherra, Davíð Oddsson skipaði svo níu árið sem hann sat í embætti, Geir Haarde þrjá en Valgerður Sverrisdóttir engan. Á dögunum gagnrýndi starfsmannaráð flutningsskyldra starfsmanna í utanríkisþjónustunni að hlutfall pólitískt skipaðra sendiherra væri hærra hérlendis en á hinum Norðurlöndunum og sérstaklega hefði kveðið rammt að slíkum skipunum á síðustu árum. Dæmi um það eru skipanir Tómasar Inga Olrich, fyrrverandi menntamálaráðherra, Júlíusar Hafstein og Markúsar Arnar Antonssonar.

Að öllu þessu sögðu þarf ekki að koma á óvart að framlag úr ríkissjóði til sendiráðanna hefur aukist jafnt og þétt. Það var árið 2003 1.654 milljónir en í ár er gert ráð fyrir að 1.803 milljónir renni til þessa málaflokks. Þá sem áhyggjur hafa af því að útgjöld muni aukast enn vegna ræðismannsskrifstofunnar í Þórshöfn má hugga með því að í staðinn verður fækkað um einn útsendan fulltrúa í Stokkhólmi og húsnæði hans þar selt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×