Innlent

Færeyskir feðgar yfirheyrðir í Baugsmálinu

MYND/Ingólfur

Yfirheyrslum yfir feðgunum Niels H. Mortesen og Hans Mortensen, framkvæmdastjórum færseyska fyrirtækisins SMS, í Baugsmálinu lauk nú fyrir hádegi en þeir voru spurðir um samskipti SMS og Baugs í tengslum við 16. ákærulið Baugsmálsins.

Hann snýr að meintri rangfærslu bókhalds Baugs en Jóni Ásgeir Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, er gefið að sök að hafa látið færa kredityfirlýsingu frá SMS upp á rúmar 46 milljónir króna inn í bókhald Baugs án þess að hún ætti sér stoð í viðskiptum þessara aðila. Baugur átti á þessum tíma helmingshlut í SMS.

Í yfirlýsingunni er talað um markaðsstuðning til Bónuss upp á 3,9 milljónir danskra króna frá Dagrofa sem er danskur heildsali sem SMS átti viðskipti við. Hafa sakborningar bent á að þetta tengdist fyrirhuguðum kaffiviðskiptum í gegnum SMS sem ekki hafi gengið eftir og því verið leiðrétt.

Fram kom í máli Hans Mortensen í morgun að Tryggvi Jónsson hefði beðið um að þessi kredityfirlýsing yrði gefin út í ágústmánuði 2001 og að texti hennar hefði komið frá Tryggva. Kredityfirlýsingin var hins vegar færð inn í bókhald Baugs í lok júní sama ár. Fram kom í máli feðganna að Tryggvi hefði gefið þá skýringu á kredityfirlýsingunni að hana ætti að nota sem innanhússkjal hjá Baugi. Kredityfirlýsingin hefði ekki verið færð í bókhald SMS.

Þá sögðu feðgarnir báðir að engin viðskipti milli SMS og Baugs hefðu legið að baki yfirlýsingunni. Hins vegar hefði verið rætt um sameiginleg innkaup Baugs eða Aðfanga og SMS á ýmsum vörum og að SMS hefði fengið markaðsstyrki eða bónusa frá Dagrofa fyrir viðskipti á hverju ári. Sagði Niels enn fremur að á tímabili hefðu Aðföng, félag Baugs, keypt kaffi í gegnum SMS af danska félaginu Kraft. Hann mundi hins vegar ekki hvaða ár þau viðskipti hefðu farið fram. Hann hefði jafnframt rætt við Lárus Óskarsson hjá Aðföngum um frekari kaffiviðskipti við Kraft en ekki hefði orðið af því þar sem Aðföng hefðu fengið betra verð á kaffi hér heima.

Feðgarnir voru einnig spurðir út yfirheyrslur hjá færeysku lögreglunni dagana 10. og 11. september 2002 vegna málsins en fyrri daginn breytti Niels framburði sínum í miðri yfirheyrslu og sagði Tryggva Jónsson hafa óskað eftir tilhæfulausum kreditreikningi að upphæð 3,9 milljónir danskra króna.

Fyrir dómi í morgun sagði Niels að hann hefði breytt framburði sínum vegna þess að hann hefði upphafi verið að geta sér þess til hvað lægi að baki ósk Tryggva um kredittyfirlýsinguna. Þá sagðist hann ekki minnast þess að orðið tilhæfulaus hefði verið notað í yfirheyrslunum og að hann skildi ekki þetta íslenska orð.

Báðir neituðu feðgarnir að skrifa undir yfirheyrsluskýrslur í málinu. Fram kom í máli Niels að hann hefði ekki skrifað undir skýrslu við yfirheyrslur seinni daginn en hann hefði ekki gert athugasemdir við það sem þar kom fram. Hugsanlega hefði lögmaður hans ráðið honum frá því að skrifa undir skýrsluna. Hans Mortensen sagðist hins vegar ekki hafa ritað undir skýrslu lögreglu fyrri daginn þar sem öfgakenndar kringumstæður hefðu verið við yfirheyrsluna eins og hann orðaði það. Hann hefði hins vegar ekki gert athugasemdir við það sem skrifað var.

Nú eftir hádegið halda áfram skýrslutökur af færeyskum vitnum, þar á meðal lögreglumönnum sem önnuðust yfirheyrslurnar yfir feðgunum. Á morgun koma svo meðal annars lögreglumenn sem önnuðust rannsókn Baugsmálsins hér á landi, þar á meðal Arnar Jensson og Jón H.B. Snorrason, fyrrverandi yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Auk þeirra kemur Jónína Benediktsdóttir einnig fyrir dóminn á morgun.


Tengdar fréttir

Hatur og bókhaldsbrot

Jón Gerald Sullenberger viðurkenndi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa tekið þátt í bókhaldsbroti með Baugsmönnum. Jón Ásgeir segir málið til komið vegna samblöndu af pólitískri óvild og hatri Jóns Geralds í sinn garð.

Hvort er frétt; húsleit eða blaðamaður

Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Kaupthing bank í Luxemborg sagði í morgun að það hefði vakið grunsemdir hjá honum hvernig blaðamaður Morgunblaðsins gat vitað af húsleit í bankanum á undan honum. Þetta sagði hann í skýrslutöku vegna Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Dró til baka meint samráð við Tryggva

Niels H. Morthensen, framkvæmdastjóri fyrirtækisins SMS í Færeyjum, var fyrsta vitni í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann dró til baka yfirlýsingu sem hann gaf áður í lögregluskýrslu um að hann og Tryggvi Jónsson hefðu haft samráð um hvernig útskýra ætti ríflega 46 milljóna króna kredityfirlýsingu sem SMS gaf út fyrir Baug og færð var í bókhald Baugs.

Villt um og snúið út úr í yfirheyrslum

Tveir fyrrverandi starfsmenn Baugs sögðu nafngreindan lögreglumann hafa reynt að villa um fyrir þeim í yfirheyrslum, og ítrekað snúið út úr ummælum þeirra, þegar þeir báru vitni í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Þreyttur á fjölda spurninga saksóknara

Dómari í Baugsmálinu veitti í dag Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, ítrekað ákúrur fyrir að spyrja ekki hnitmiðaðra spurninga og fjalla um það sem ekki væri ákært fyrir í Héraðsdómi í dag.

Lystisnekkja eða skemmtibátur?

Fimmtán verslunarstjóarar Bónuss fóru í skemmtiferð með Viking snekkjunni í Florida sem nú er til umfjöllunar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Tekist var á um hvort bátarnir þrír væru skemmtibátar eða lystisnekkjur eins og saksóknari vildi kalla þá. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði um skemmtibáta að ræða.

Fullyrðingar um leka rangar

Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hann tekur fram að fullyrðingar um að embættið hafi lekið upplýsingum um rannsókn á Baugsmálinu séu rangar.

Segir Baug hafa tapað 260 milljörðum

Jón Ásgeir Jóhannesson var spurður út í ásakanir um fjárdrátt vegna skemmtibáta á Flórída í réttarsal í gær. Hann ræddi einnig tölvupósta Styrmis Gunnarssonar og Jónínu Benediktsdóttur, og upphaf Baugsmálsins við lok skýrslutöku.

Davíð kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóri, kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn sem væru á leið í fangelsi á fundi með Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs, í Lundúnum í janúar 2002. Frá þessu greindi Hreinn í réttarsal í morgun. Davíð sagðist einnig algjörlega andvígur því að íslensku bankarnir styddu Baug í áhættufjárfestingum erlendis.

Sakaður um ólöglega lántöku

Sérstakur ríkissaksóknari reynir að sanna, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hafi m.a. staðið að ólöglegum lánveitingum frá Baugi til Gaums á tímabilinu 1999 - 2002, þegar Baugur var almenningshlutafélag. Þriggja daga yfirheyrslur hófust yfir Jóni Ásgeiri í héraðsdómi í morgun.

Fær ekki að klára yfirheyrslur yfir Jóni

Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari í Baugsmálinu kvartaði yfir því að fá ekki að klára yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í dag. Dómari ákvað að að yfirheyrslum hans yfir Jóni yrði hætt um sinn klukkan 16.15 í dag. Arngrímur Ísberg dómari í byrsti sig við saksóknara og sagði að saksóknari gæti sjálfum sér um kennt að fá ekki lengri tíma til að yfirheyra Jón Ásgeir.

Vilja að fallið verði frá einum ákærulið

Verjendur tveggja ákærðu í Baugsmálinu telja forsendur fyrir einum ákærulið brostnar eftir vitnisburð Jóns Geralds Sullenbergers. Sækjandi segist ekki ætla að falla frá ákæruliðnum. Jón Gerald segir Gaum aldrei hafa átt bát með sér.

Baugsmálið hafið að nýju

Í morgun hófust réttarhöld í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna endurákæru í Baugsmálinu svonefnda. Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group var sá fyrsti sem kallaður var til yfirheyrslu af hinum þrem ákærðu, en hinir eru Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger. Búist er við að yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri standi eitthvað fram eftir vikunni. Jón Gerald Sullenberger er nú ákærður í fyrsta skipti í málinu. Yfir eitt hundrað vitni verða auk þess yfirheyrð.

Ósamræmi í framburði

Framburður tveggja forsvarsmanna Baugs um fyrirtæki á Bahama-eyjum eru í algerri andstöðu hvor við annan. Það átti að skrá eignarhald á skemmtibátnum Thee Viking á félagið samkvæmt sækjanda.

Meiningarlausar spurningar saksóknara

Deilt var á Sigurð Tómas Magnússon settan saksóknara í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að fylgja ekki eftir áætlun um yfirheyrslu vitna í Baugsmálinu. Jakob Möller lögmaður Tryggva Jónssonar sagði um mikil afglöp að ræða hjá settum saksóknara og að menn þyrftu að sitja undir; “sumpart meiningarlausum spurningum.”

Jón Gerald telur brotið gegn sér

Jón Gerald Sullenberger segir að brotið sé gegn grundvallarréttindum hans um að fá að vera viðstaddan yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Baugsmálinu. Eftirfarandi er yfirlýsing sem Jón Gerald sendi fjölmiðlum:

Fækkað á vitnalista í Baugsmálinu

Málflutningi í Baugsmálinu svokallaða er lokið í dag en haldið verður áfram í fyrramálið. Eitthvað verður fækkað vitnalista, sem nú telur rúmlega 100 manns, en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið verður fækkað á listanum.

Vitnaleiðslur halda áfram í Baugsmálinu

Vitnaleiðslur héldu áfram í Baugsmálinu í morgun en þar hafa Jóhanna Guðmundsdóttir, eiginkona Jóns Geralds Sullenberger, og Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Baugi, borið vitni. Jóhanna var spurð út í bátana þrjá á Miami sem Baugsmenn eru sagðir hafa átt.

Baugstölur teknar úr samhengi

Starfstengdar greiðslur til æðstu yfirmanna Baugs voru samningsbundnar í starfssamningum og ekki teknar úr sjóðum félagsins ófrjálsri hendi eins og gefið hefur verið í skyn í fréttum RUV. Tölur sem fréttirnar byggðu á voru teknar úr samhengi. Þetta kemur frá í fréttatilkynningu frá Baugi Group hf.

Neitaði ásökunum um bókhaldsbrot

Skýrslutaka af Tryggva Jónssyni, sem var aðstoðarforstjóri Baugs á árunum 1998-2002, hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar svaraði Tryggvi fyrir meint bókhaldsbrot sem kveðið er á um í 11.-13. og 17. ákærulið endurákærunnar í Baugsmálinu. Hann neitaði sök.

Ekki áhugamaður um báta

Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings sagðist í þrígang hafa verið í bátum á Miami, bátum sem teknir eru fyrir í Baugsmálinu. Hann sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegið að hann væri þó ekki áhugamaður um báta og vissi ekki hvort um hefði verið að ræða Thee Viking sem tekist hefur verið á um.

Jón Ásgeir yfirheyrður í þrjá daga

Hádegishlé er í aðalmeðferð í Baugsmálinu en hún hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun með vitnisburði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Sérstakur ríkissaksóknari reiknar með að yfirheyra Jón Ásgeir í þrjá daga en tekist var á um tilteknar lánveitingar Baugs til Gaums.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×