Viðskipti innlent

Industria verðlaunað fyrir sjónvarp um net

Guðjón er framkvæmdastjóri íslenska tæknifyrirtækisins Industria sem auk þess að búa til hugbúnað fyrir miðlun stafræns efnis byggir upp ljósleiðaranet.
Guðjón er framkvæmdastjóri íslenska tæknifyrirtækisins Industria sem auk þess að búa til hugbúnað fyrir miðlun stafræns efnis byggir upp ljósleiðaranet.
„Freewire“ er besta nýjungin á sviði sjónvarps sem dreift er með internettækni (Internet Protocol Television – IPTV) að mati dómnefndar Global Tele­coms Business magazine Inno­vation Awards. Industria, ásamt breskum samstarfsaðila að nafni Inuk Networks, vann til verðlaunanna nýverið.

Stefán Baxter, þróunarstjóri Industria, og Marcus Liassides, framkvæmdastjóri Inuk Networks, veittu verðlaununum viðtöku á verðlaunahátíð í Whitehall í Lundúnum að viðstöddum um 180 stjórnendum fjarskiptafyrirtækja víðs vegar að úr heiminum.

Inuk hefur leitt innleiðingu Freewire-þjónustunnar, en henni er til að byrja með ætlað að veita öllum breskum háskólastúdentum aðgang að stafrænu sjónvarpi um internetið, að því er fram kemur í tilkynningu félaganna.

„Gríðarlega góðar viðtökur Freewire gefa vísbendingar um að innan árs verður þetta stærsta IPTV-dreifingarnet Bretlands og muni jafnvel ná til sex milljóna notenda. Jafnframt stefnir Inuk á að bjóða sömu þjónustu til háskólastúdenta í Kanada fyrir lok þessa árs,“ segir þar, en Inuk valdi Zignal, alhliða hugbúnaðarlausn fyrir dreifingu á gagnvirku margmiðlunar- og sjónvarpsefni um internetið, sem Industria hefur þróað.

„Meðal nýjunga sem ekki hafa sést áður í hugbúnaði af þessu tagi er möguleikinn á að taka við gagnvirkum sjónvarpsútsendingum beint í hemilistölvu, án þess að vera með sérstakan afruglara. Þá getur Zignal einnig dreift sjónvarpsefni í farsíma af þriðjukynslóð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×