Innlent

208% aukning í sölu á MP3 hringitónum

Sala á MP3 hringitónum hjá Og Vodafone hefur aukist um 208% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2006 samanborið við fjórða ársfjórðung 2005. Ein helsta ástæðan fyrir aukinni sölu er að nú geta viðskiptavinir einnig sótt sér MP3 hringitóna í gegnum Vodafone live! farsíma. Auk þess geta þeir einnig nýtt sér slíka þjónustu á vefsvæði Og Vodafone. Þá jókst salan í kjölfar Idol stjörnuleitar. Öll lög frá keppninni í Smáralind er að finna sem MP3 hringitóna í Vodafone live! og á www.ogvodafone.is. Hringitónar með Silvíu Nótt hafa ennfremur notið mikilla vinsælda og átt þátt í aukinni sölu í upphafi árs.

Og Vodafone hefur lagt enn meiri áherslu á hringitóna til handa viðskiptavinum á þessu ári, einkum eftir að þeim gafst kostur að sækja sér efni í gegnum Vodafone live! efnisgáttina. Meðal annars hefur úrval íslenskra hringtóna stóraukist. Þá hafa miklar útlitsbreytingar á vefsvæði Og Vodafone gert viðskiptavinum mögulegt að ná í efni með enn auðveldari hætti en áður.

Og Vodafone hefur einstakan aðgang að íslenskum MP3 hringitónum í samvinnu við D3 sem er efnisveita frétta- og afþreyingarefnis fyrir stafræna miðla. Þar er jafnt um að ræða gamla og góða íslenska tónlist, svo sem frá Bubba Morthens og Spilverki þjóðanna, til nýjustu slagaranna frá Dr. Mister & Mister Handsome og Nylon.

"Það er sífellt auðveldara fyrir viðskiptavini að sækja sér hringitóna, einkum eftir að Vodafone live! farsímar komu á markað. Með Vodafone live! er hægt að sækja hringitóna beint í gegnum farsíma en slíkt var áður ekki hægt með einföldum hætti," segir Gísli Þorsteinsson upplýsingafulltrúi Og Vodafone. Hann segir að styrkleikar Vodafone live! felist í því að þjónustan sé alltaf við hendina, viðmótið einfalt og þægilegt og ekkert sé greitt fyrir að skoða það sem er í boði. "Vodafone live! er því einstök lausn frá Vodafone Group, stærsta farsímafyrirtæki heims, sem viðskiptavinir Og Vodafone njóta góðs af," segir Gísli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×