Innlent

Rannsóknardeildin réð úrslitum

Frá Akranesi
Frá Akranesi MYND/GVA

Lögreglan á Akranesi verður lykilembætti á Vesturlandi samkvæmt ákvörðun Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra en ekki Borgarnes eins og nefnd sem gerði tillögur um fækkun lögregluumdæma gerði tillögu um. Björn segir helstu ástæðuna fyrir breytingunni þá að rannsókn lögreglumála sé eitt af stærstu verkefnum lykilembætta og mikil og góð reynsla sé af rannsóknastarfi á Akranesi.

Upphaflega var lagt til að Borgarnes yrði að lykilembætti. Það fór fyrir brjóstið á sveitarstjórnarmönnum á Akranesi sem óttuðust að vægi lögreglunnar á Akranesi minnkaði, ekki síst vegna þess að þá yrði rannsóknardeildin að líkindum flutt til Borgarness.

Ákvörðun dómsmálaráðherra um að hafa Akranes lykilembætti hefur hins vegar valdið óánægju, líkt og kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. Björn gerir grein fyrir ástæðunum að baki ákvörðun sinni í pistli á heimasíðu sinni: "...rök mín eru þau, að löng og góð reynsla er af rannsókn lögreglumála á Akranesi, en lykilembætti gegna einmitt lykilhlutverki á því sviði. Taldi ég, að sú efnislega ástæða ætti að vega þyngra en lega Borgarness."

Björn svarar einnig gagnrýni bæjarstjóranna í Kópavogi og Hafnarfirði í fréttum NFS í gærkvöldi á stofnun nýs lögregluembættis á höfuðborgarsvæðinu. "Með því að stofna nýtt lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu frekar en fella minni embætti inn í hið stærsta er komið til móts við sjónarmið, sem fram komu á kynningarferli málsins, en það hefur staðið í tæplega eitt ár. Markmið breytinganna er að efla löggæslu en ekki draga úr henni eins og mátti skilja á orðum bæjarstjórans í Hafnarfirði. Ég átta mig ekki á því með hvaða rökum hann heldur þeirri skoðun fram - hitt er síðan alþekkt, að margir óttast breytingar í stað þess að sjá tækifæri í þeim og leggja sig því ekki fram um að nýta þau - þeir sitja einnig oft eftir með sárt enni."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×