Innlent

Guðjón býst við mótframboði frá Margréti

Formaður og varaformaður Frjálslynda flokksins. Þeir félagar ræða loks málin við Margréti Sverrisdóttur seinna í dag, eftir margra vikna erjur. Fundurinn gæti orðið marga klukkutíma langur, sagði Guðjón í gær.
Formaður og varaformaður Frjálslynda flokksins. Þeir félagar ræða loks málin við Margréti Sverrisdóttur seinna í dag, eftir margra vikna erjur. Fundurinn gæti orðið marga klukkutíma langur, sagði Guðjón í gær. MYND/E.ól

Miðstjórnarfundur Frjálslynda flokksins verður haldinn klukkan 17.30 í dag. Á honum verður rædd framtíðarstaða Margrétar Sverrisdóttur, og sérstaklega hvort hún láti af stöðu sinni sem framkvæmdastjóri flokksins, en Margréti var um mánaðamót sagt upp sem framkvæmdastjóra þingflokksins. „Við fréttum lítið af fyrirætlunum Margrétar nema gegnum fjölmiðla og hún verður því innt eftir þeim,“ sagði Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður flokksins, í gær.

Þriggja manna sjálfskipuð sáttanefnd fundaði með þingflokknum á fimmtudag og síðan með Margréti daginn eftir, en Margrét hefur ekki fundað með þingflokknum í eigin persónu og þingflokknum hefur ekki borist sáttatillögur frá henni. Þau Margrét og Guðjón A. Kristjánsson, formaður flokksins, hittust á skrifstofu flokksins í gær, en ræddu ekki málin.

Þeim Magnúsi Þór og Guðjóni Arnari finnst ekki við hæfi að Margrét gegni mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, fari hún jafnframt í framboð gegn þeim, en þeir reikna báðir með því að svo verði á komandi landsþingi í janúar. „Það væri skrítin staða að hafa framkvæmdastjóra sem væri að fara að vinna gegn okkur. Framkvæmdastjórinn á að vera allra,“ sagði Magnús Þór.

Að mati Guðjóns Arnars er líklegt að Margrét fari fyrst í formannsframboð, en síðan í varaformannsslaginn, gangi hið fyrra ekki eftir. Að honum vitandi er ekkert í reglum flokksins sem hindrar slíkt. Þeir Guðjón Arnar og Magnús Þór sögðust í gær ekki ætla að víkja fyrir Margréti. „Ég er ekkert á leiðinni úr flokknum. Ég tel að ég hafi unnið þessum flokki vel og mun berjast fyrir minni stöðu. Það er ekki hægt að semja um slíkt á lokuðum fundum,“ sagði Magnús Þór.

Guðjón Arnar sagðist ætla að bíða átekta þangað til sáttanefndin skilaði tillögum á fundinum og miðstjórn myndi þá taka ákvörðun um hvort farið yrði fram á að Margrét Sverrisdóttir segði af sér sem framkvæmdastjóri flokksins á fundinum í dag. Þeir Magnús Þór og Guðjón Arnar sitja í miðstjórn ásamt Margréti. Hún vildi ekki tjá sig um málið í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×