Tónlist

Íslensku tónlistarverðlaunin - Mugison með fimm tilnefningar

Mugison hlýtur fimm tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 og Brain Police hlýtur fjórar tilnefningar. Verðlaunin verða afhent með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 2. febrúar 2005.

Undirbúningur fyrir afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 hefur staðið yfir síðust vikur og verða verðlaunin afhent með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 2. febrúar 2005.

Íslensku tónlistarverðlaunin hafa nú verið afhent tíu sinnum en þau voru afhent í fyrsta sinn í apríl mánuði 1994 og þá fyrir starfsárið 1993. Það er Samtónn sem stendur fyrir verðlaunafhendingunni.

Íslensku tónlistarverðlaunin er uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar og eru verðlaunin hugsuð sem vegsauki fyrir íslenska tónlist, flytjendum, höfundum og útgefendum til hvatningar.

Dómnefndir hafa valið eftirfarandi verk í 4 flokkum:

Popp og rokk-flokkur

Popp-plata ársinsRokk-plata ársins
Mugimama, Is This Monkeymusic? - MugisonHljóðlega af stað - Hjálmar
Hello Somebody - JagúarGuerilla Disco - Quarashi
Eivör - Eivör PálsdóttirElectric Fungus - Brain Police
Medúlla - BjörkSlowblow
Meðan ég sef - Í svörtum fötumHome of the Free-Jan Mayen
 

Dægurtónlist plata ársinsLag ársins
Tvíburinn - Bubbi MorthensStun Gun - Quarashi
Jón ÓlafssonMur Mur - Mugison
Smásögur - BrimklóFallegur Dagur - Bubbi
Vetrarljóð - Ragnheiður GröndalSunnudagsmorgunn - Jón Ólafsson
Betra en best - MannakornDís - Jóhann Jóhannsson/Ragnheiður Gröndal
Söngvari ársinsSöngkona ársins
Páll RósinkransRagnheiður Gröndal
Jón Jósep SnæbjörnssonEivör Pálsdóttir
Björgvin HalldórssonBjörk Guðmundsdóttir
MugisonGuðrún Gunnardóttir
Jens ÓlafssonMargrét Eir
Flytjandi ársinsBjartasta vonin
QuarashiHjálmar
MugisonJan Mayen
HjálmarStranger
JagúarÞórir G. Jónsson
Brain Police 

Sígild og samtíma tónlist

Tónverk ársinsPlata ársins
Flow and Fusion eftir Þuríði JónsdótturVerk fyrir selló og píanó. Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Edda Erlendsdóttir píanóleikari spila tónverk eftir Enescu, Janacek, Kodaly og Martinu.
Grettir eftir Þorkel SigurbjörnssonFerskir vindar. Camilla Söderberg flytur íslenskar tónsmíðar fyrir blokkflautu og rafhljóð.
Sería fyrir 10 hljóðfæraleikara eftir Hauk TómassonGlíman við Glám. Símon H. Ívarsson leikur gítartónsmíðar eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
Sinfónía eftir Þórð MagnússonVirðulegu forsetar eftir Jóhann Jóhannsson. CAPUT, Guðmundur Sigurðsson, Hörður Bragason, Matthías M.D. Hemstock, Skúli Sverrisson og Jóhann Jóhannsson flytja.
Sjö byltur svefnleysingjans eftir Harald Vigni SveinbjörnssonÞað er óskaland íslenskt. Kór Áskirkju flytur íslensk ættjarðarlög undir stjórn Kára Þormar. (Kór Áskirkju).
Flytjandi ársinsBjartasta vonin
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikariAri Þór Vilhjálmsson fiðluleikari
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikariÁki Ásgeirsson / Berglind María Tómasdóttir ?Aton
CAPUT-hópurinnDaníel Bjarnason ? Kammersveitin Ísafold
Íslenska óperan ? fyrir flutning á Sweeney Todd eftir Stephen Sondheim.Eyjólfur Eyjólfsson tenór
Sinfóníuhljómsveit Íslands ? Rumon Gamba fyrir flutning á sinfóníum Dmitri Sjostakovich.Birna Helgadóttir / Freyja Gunnlaugsdóttir / Una Sveinbjarnardóttir - Tríó Gorki Park
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari

Jazzflokkur

Plata ársinsFlytjandi
Dansaðu fíflið þitt dansaðu!, Sammi & Tómas R. Stórsveitin JagúarSamúel Jón Samúelsson og stórsveitin Jagúar
Lúther, Björn ThoroddsenB-3
Kör, B-3Björn Thoroddsen
Skuggsjá, Jóel Pálsson / Eyþór GunnarssonJóel Pálsson/ Eyþór Gunnarsson
Beautiful monster, RodentRodent
Lag ársins

Ástin eftir Tómas R. Einarsson (Dansaðu fíflið þitt dansaðu)
Kaleidosope eftir Árna Egilson
Þórdísardans eftir Andrés Þór Gunnlaugson
Evil beaver eftir Hauk Gröndal
Kör eftir Ásgeir Jón Ásgeirsson
Í dauðans höndum eftir Björn Thoroddsen

Önnur verðlaun

Umslag ársins

Slowblow - Very slow bossanova
Brain Police - Electric fungus
Múm - Summer make good
Mugison - Mugimama, is this monkey music?
Ske - Feelings are great
Saga íslensku tónlistarverðlaunanna

Sögu íslenskra tónlistarverðlauna má rekja aftur til ársins 1960 þegar Svavar Gests hélt úti poppsíðu í vikublaðinu Ásinn og tveimur árum síðar hjá Vikunni. Íslensk tónlistarverðlaun hafa þó verið slitrótt og ekki dró til tíðanda aftur fyrr en árið 1967 þegar Vikan endurvakti verðlaunin í samstarfi við tískuvöruverslunina Karnabæ.

Árið 1969 var ungur piltur úr Hafnarfirði, Björgvin Halldórsson valin poppstjarna ársins og hljómsveit hans, Ævintýri, var valin besta hljómsveitin. Eftir þessa sögulegu keppni í Laugardagshöll varð langt hlé þar til Dagblaðið stóð fyrir Störnumessunum í nokkur ár.

Það var síðan árið 1993 að nokkrir félagar úr Rokkdeild FÍH með þá Stefán Hjörleifsson og Eið Arnarsson í fararbroddi endurvöktu Íslensku tónlistarverðlaunin í núverandi mynd. Það var meðvituð ákvörðun þeirra félaga að byrja smátt og öðrum þræði var litið á verðlaunahátíðina sem árshátíð tónlistarbransans. Með árunum hafa íslensku tónlistarverðlaunin stækkað og dafnað og njóta nú virðingar meðal almennings og tónlistarfólks. Undanfarin ár hefur hátíðin verið öll hin glæsilegasta og meðal annars verið send út í Sjónvarpinu með mikið áhorf.

Árið 2002 tók Samtónn við stjórn verðlaunanna og framkvæmdastjóri þeirra frá árinu 2001 hefur verið Einar Bárðarsson. Tilgangur Íslensku tónlistarverðlaunanna hefur frá upphafi verið að varpa kastljósi á Íslenska tónlist og verðlauna þá aðila sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári.

Tónlist.is hefur verið opinbert vefsetur Íslensku tónlistarverðlaunanna frá 2003 og þar má finna upplýsingar um tilnefningar og úrslit í öllum flokkum frá upphafi. Einnig er mögulegt að kaupa þá tónlist sem kemur við sögu, annað hvort stök lög eða plötur eftir að hafa hlýtt á lögin og að auki má skoða ítarlegar upplýsingar um alla þá listamenn, hljómsveitir og plötur sem hafa verið tilnefndar í gegnum tíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×