Lífið

Amazing Race á Íslandi

Tvö hundruð milljónir manna upplifa Ísland í allri sinni dýrð með augum ringlaðra ferðalanga á næstu vikum og mánuðum, þegar nýjasta þáttaröðin af Kapphlaupinu mikla, eða Amazing Race, verður sýnd um allan heim.   Sjötta þáttaröðin af Amazing Race hefst með því að átján misringlaðir ferðalangar birtast í Leifsstöð með miklum bækslagangi og tekst, þrátt fyrir hlaup og læti, að vera lengur inn í landið en þeir sem gleymdu sér í fríhöfninni. Ber greind þeirra ekki fagurt vitni, en er frábært sjónvarpsefni og það sama má líklega segja um Ísland, sem framleiðendum þáttaraðarinnar þótti svo myndrænt að það þurfti heila tvo þætti til að sýna dýrðina. Við segjum ekki alla ferðasöguna hér, enda væri þá lítið gaman þegar Stöð 2 hefur sýningar á þáttaröðinni í janúar, en talið er að tvö hundruð milljónir manna um víða veröld muni sitja límdir við skjáinn á næstunni til að fylgjast með ævintýrum á klakanum. Framleiðendurnir telja þetta mestu landkynningu sem Ísland hefur fengið, tveir tímar á besta sýningartíma, og ferðaþjónustuaðilar segjast sjá kipp í eftirspurn nú þegar. Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, segir heimsóknir inn á vef fyrirtækisins hafa aukist mjög og fyrirspurnum hafi fjölgað. Hvenær það verður að bókunum eða ferðamönnum er erfiðara að segja til um. Spurður um verðmæti þessarar landkynningar segir Steinn Logi ekki hægt að setja verðmiða á hana. Hún er t.d. það dýr að Icelandair hefði aldrei efni á að greiða fyrir svona auglýsingu á þessum tíma í bandarísku sjónvarpi.  





Fleiri fréttir

Sjá meira


×