Fyrstu viðbrögð erlendra aðila jákvæð 28. nóvember 2008 17:41 MYND/GVA
Beat Siegenthaler sérfræðingur hjá TD Securities í London, en fyrirtækið hefur verið umfangsmikið í viðskiptum við Ísland, er nokkuð jákvæður á aðgerðir Íslendinga er varða lokun á útflæði gjaldeyris. Hann segist búast við því að algjör lokun standi stutt yfir og að á næstu vikum og mánuðum verði krónubréfaeigendum gert kleift að losna úr stöðum sínum. Þetta kemur fram í daglegu fréttabréfi Siegenthalers sem birt er á heimasíðu TD Securities. „Okkur skilst að nýju reglurnar séu settar í samvinnu við Alþóðagjaldeyrissjóðinn og að til standi að létta á þessum höftum yfir ákveðið tímabil. Lögin sem samþykkt voru í gærkvöldi gera Íslendingum kleift að loka á viðskiptin í tvö ár en við teljum að létt verði á höftunum mun fyrr. Í hnotskurn eru íslensk stjórnvöld að reyna að koma á fljótandi gjaldeyrisskiptamarkaði og reyna finna út jafnvægisgengi án þess að útlendingar losi sig úr stöðum sínum á sama tíma," segir Siegenthaler en hann segir vandamálið vera hvernig hægt verði að vinda ofan af þeim 400 milljörðum sem útlendingar eiga í ríkisskuldabréfum hér á landi og þeim 250 milljörðum sem þessir aðilar eiga í svokölluðum krónubréfum. „Við búumst við því að stjórnvöld heimili útlendingum að skipta út krónum fyrir evrur í vaxandi mæli á næstu vikum og mánuðum," segir Beat Siegenthaler að lokum en bendir á að í nánustu framtíð sitji útlendingar uppi með bréfin sín hér á landi.
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira