Tónlist

Fyrstu nöfnin tilkynnt á Secret Solstice hátíðina

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Fyrstu tónlistarmennirnir sem koma fram á Secret Solstice tónlistarhátíðinni í júní hafa nú verið tilkynntir. Margir tónlistarmenn eru þegar komnir í sarpinn en í fyrstu lotu verður þó aðeins tilkynnt um það sem flokkast undir dans.

Áætlað er að tilkynnt verði fjórum sinnum alls um tónlistarmenn á hátíðinni en samkvæmt aðstandendum hátíðarinnar mun miðaverð fara hækkandi eftir því sem fleiri listamenn bætast við hópinn.

Af þeim tónlistarmönnum sem eru nú tilkynntir ber helst að nefna Moodymann, Erol Alkan, Flight Facilities, GusGus, KiNK, Route 94, Daniel Avery, FM Belfast og DJ sett með heimsfrægu sveitinni Zero 7 frá Frakklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×