Erlent

Fyrstu myndirnar af eyðilögðum sigurboga í Palmyra birtar

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurboginn var um tvö þúsund ára gamall.
Sigurboginn var um tvö þúsund ára gamall.
Fyrstu myndirnar af sigurboganum í Palmyra eftir að hann var sprengdur af liðsmönnum ISIS hafa nú ratað í fjölmiðla.

Fréttir bárust af því fyrir nokkrum dögum að ISIS-liðar höfðu eyðilagt sigurbogann í fornu borginni sem er um tvö þúsund ára gamall.

Einungis er um stutt myndskeið að ræða en á því má glögglega sjá þær skemmdir sem hafa verið unnar á honum.

Forna borgin í Palmyra er á heimsminjaskrá UNESCO, en ISIS-liðar náðu borginni á sitt vald í maí síðastliðinn og hafa síðan eyðilagt og unnið skemmdir á gömlum hofum og öðrum minjum.

Footage emerges of what appears to be the destroyed Arch of Triumph in #Palmyra

Posted by BBC News on Thursday, 8 October 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×