Sport

Fyrstu börn ársins með Cubs-nöfn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wrigley litla með foreldrum sínum.
Wrigley litla með foreldrum sínum. mynd/twitter
Fyrstu börnin sem fæddust í Chicago á árinu fengu nöfn sem tengjast hafnaboltaliðinu Chicago Cubs enda fólk þar í borg enn að jafna sig eftir fyrsta titil félagsins í 108 ár.

Fyrsta barn ársins í Chicago var nefnt Wrigley en heimavöllur Cubs er Wrigley Field. Foreldrarnir augljóslega mikið Cubs-fólk.

Annað barn sem fæddist í Chicago þann 1. janúar var nefnt Addyson í höfuðið á Addison Russell, leikmanni Cubs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×