Lífið

Fyrsti þáttur af Illa farnir

„Við Arnar erum með framleiðslufyrirtækið  Mint Productions  og ég fór í ferðalag í sumar og það varð svona kveikjan að þáttunum. Ég var heillaður af því sem ég sá og það rann upp fyrir mér hvað ég veit í raun lítið um Ísland og það er ekki kúl,“ segir Davíð Arnar Oddgeirsson. 



Hann, ásamt Arnari Þór Þórssyni og Brynjólfi Löve, verður með vikulega sjónvarpsþætti á Vísi sem heita Illa farnir.



„Það er svona tvöföld meining í þessu. Við erum alltaf að fara eitthvert og eftir ferðalögin erum við búnir að sofa lítið og verða kalt, svona pínu illa farnir,“ segir Davíð léttur í bragði um nafn þáttanna.



Félagarnir stefna á að heimsækja alla landshluta í þáttunum.

Hér fyrir ofan má sjá fyrsta þátt af flakki þeirra um Suðurland þar sem þeir láta gamminn geysa í Adrenalíngarðinum.



Tengdar fréttir

Illa farnir vinir fara á ferðalag um Ísland

Þættirnir Illa farnir eru hugmynd Davíðs Arnars Oddgeirssonar, Arnars Þórs Þórssonar og Brynjólfs Löve. Félagarnir ferðast um Ísland og búa til ævintýri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×