Enski boltinn

Fyrsti sigur Newcastle á leiktíðinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Marki Obertan fagnað.
Marki Obertan fagnað. Vísir/Getty
Alan Pardew og lærisveinar hans í Newcastle unnu afar mikilvægan sigur á Leicester nú síðdegis. Gabriel Obertan var hetjan.

Gabriel Obertan skoraði eina markið með góðu skoti stuttu eftir að Papiss Cisse hafði klikkað öskrandi góðu færi fyrir opnu marki.

Sigurinn var afar mikivægur fyrir Newcastle, en þetta var fyrsti sigur Newcastle á leiktíðinni. Liðið er í fallsæti með sjö stig, en Leicester er í þrettánda sæti með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×