Fótbolti

Fyrsti sigur Jóns Daða og félaga í tæpa tvo mánuði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði hefur skorað tvö mörk í níu deildarleikjum með Kaiserslautern.
Jón Daði hefur skorað tvö mörk í níu deildarleikjum með Kaiserslautern. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson og félagar hans í þýska B-deildarliðinu Kaiserslautern unnu mjög svo kærkominn sigur á Sandhausen, 2-0, í dag. Jón Daði skoraði síðara mark Kaiserslautern úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Kaiserslautern hafði tapað fimm leikjum í röð fyrir leik dagsins og ekki unnið leik síðan 12. febrúar.

Jón Daði lék allan leikinn í framlínu Kaiserslautern en þetta er aðeins í annað skiptið sem hann er í sigurliði í deildarleik síðan hann kom til félagsins frá Viking í Noregi í byrjun árs.

Norðmaðurinn Ruben Jenssen skoraði fyrra mark Kaiserslautern strax á 6. mínútu en heimamenn vörðust vel í leiknum og Jón Daði kláraði svo dæmið í uppbótartíma eins og áður sagði.

Kaiserslautern er í 11. sæti deildarinnar með 34 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×