Handbolti

Fyrsti sigur Aftureldingar | Öll úrslit kvöldsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Morgan Marie Þorkelsdóttir í leiknum á Selfossi í kvöld. Hún skoraði fjögur mörk fyrir Val.
Morgan Marie Þorkelsdóttir í leiknum á Selfossi í kvöld. Hún skoraði fjögur mörk fyrir Val. Mynd/Jóhannes Ásgeir Eiríksson
Afturelding komst á blað í Olísdeild kvenna í kvöld er liðið vann ÍR í Mosfellsbæ í kvöld með minnsta mun, 20-19.

Sigurinn var dramatískur en sigurmarkið kom átta sekúndum fyrir leikslok. ÍR hafði leitt í hálfleik, 10-9.

Alls fóru sex leikir fram í deildinni í kvöld en Fram hafði betur gegn Stjörnunni á heimavelli, sem á lesa um hér.

Þá hafði Valur betur gegn Selfossi á útivelli, 25-21, en HK, Fjölnir og Haukar unnu einnig sigra í kvöld. Umferðinni lýkur annað kvöld er toppliðin ÍBV og Grótta eigast við í Vestmanneyjum en bæði lið eru með fullt hús stiga eftir sjö umferðir.

Fram er í þriðja sætinu með þrettán stig, rétt eins og Haukar. Valur er svo með tólf stig og Selfoss tíu. KA/Þór er nú á botninum eð eitt stig en Afturelding og ÍR koma næst fyrir ofan með tvö stig hvort.

Úrslit kvöldsins

Afturelding - ÍR 20-19 (9-10)

Mörk Aftureldingar: Hekla Daðadóttir 4, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Ingibjörg Jóhannesdóttir 2, Nóra Csakovics 2, Vigdís Brandsdóttir 2, Telma Rut Frímannsdóttir 2, Dagný Birgisdóttir 1, Íris Sigurðardóttir 1, Íris Elna Harðardóttir 1, Magnea Rós Svansdóttir 1, Erla Mjöll Tómasdóttir 1.

Mörk ÍR: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 6, Silja Ísberg 4, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 2, Margrét Valdimarsdóttir 2, Brynhildur Kjartansdóttir 2, Auður Margrét Pálsdóttir 2, Karen Ösp Guðbjartsdóttir 1.

Haukar - KA/Þór 29-20 (15-10)

Mörk Hauka: Maria Ines De Silve Pereira 6, Ramune Pekarskyte 6, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 5, Ragnheiður Sveinsdóttir 4, Erla Eiríksdóttir 4, Karen Ósk Kolbeinsdóttir 1, María Karlsdóttir 1, Anna Þrastardóttir 1, Vilborg Pétursdóttir 1.

Mörk KA/Þórs: Erla Heiður Tryggvadóttir 5, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Arna Kristín Einarsdóttir 4, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 3, Rakel Ösp Sævarsdóttir 2, Aldís Ásta Heimisdóttir 1, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1.

HK - Fylkir 23-21 (10-10)

Mörk HK: Emma Havin Sardarsdóttir 7, Sigríður Hauksdóttir 6, Þórhildur Þórðardóttir 4, Arna Þyrí Ólafsdóttir 2, Ada Kozicka 2, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1.

Mörk Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 6, Vera Pálsdóttir 4, Ólöf Þorsteinsdóttir 3, Patricia Szölösi 3, Rebekka Friðriksdóttir 3, Þuríður Guðjónsdóttir 2.

Selfoss - Valur 21-25 (10-17)

Mörk Selfoss: Carmen Palamariu 6, Adina Maria Ghidoarca 5, Hrafnhildur Hanna Þorsteinsdóttir 4, Perla Ruth Albertsdóttir 3, Hulda Dís Þrastardóttir 1, Elena Elísabet Birgisdóttir 1, Hildur Öder Einarsdóttir 1.

Mörk Vals: Íris Pétursdóttir Viborg 6, Kristín Guðmundsdóttir 4, Morgan Marie Þorkelsdóttir 4, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 3, Gerður Arinbjarnar 2, Eva Björk Hlöðversdóttir 2, Sigurlaug Rúnarsdóttir 2, Bryndís Elín Halldórsdóttir 2.

Fjölnir - FH 26-25




Fleiri fréttir

Sjá meira


×