Golf

Fyrsti risasigur Molinari kom á Opna breska

Anton Ingi Leifsson skrifar
Molinari fagnar sigrinum í dag.
Molinari fagnar sigrinum í dag. vísir/getty
Ítalski kylfingurinn Francesco Molinari kom, sá og sigraði á Opna breska meistaramótinu sem spilað var á Carnoustie-vellinum.

Þetta er hans fyrsti sigur á risamóti á ferlinum en fyrir þetta hafði hann best náð öðru sæti á PGA-móti. Það gerðist í fyrra svo uppgangur Ítalans er mikill.

Hann spilaði hringina þrjá á samtals átta höggum undir pari en hann var í baráttunni við Jordan Spieth, Tiger Woods og fleira öfluga kylfinga fram á síðustu holu.

Ítalinn stóð uppi sem sigurvegari að endingu er hann spilaði lokahringinn á 69 höggum og samtals hringina fjóra á átta höggum undir pari. Frábærlega gert.

Fjórir kylfingar voru jafnir í öðru sæti; Justin Rose, Rory MclLroy, Kevin Kisner og Xander Schauffele. Á eftir þeim komu svo Tiger Woods, Eddie Pepperell og Kevin Chapell.

Tiger var í forystunni um tíma en skolli á sextándu holu gerði honum erfitt fyrir. Frábær árangur hjá honum samt og besti í áraraðir en hann hefur verið að glíma við alls konar vandamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×