Fótbolti

Fyrsti leikur sextán liða úrslitanna klár | Ungverjar komnir áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robert Lewandowski hefur enn ekki skorað á EM en getur bætt úr því á móti Sviss í 16 liða úrslitunum.
Robert Lewandowski hefur enn ekki skorað á EM en getur bætt úr því á móti Sviss í 16 liða úrslitunum. Vísir/EPA
Keppni er nú lokið í þremur riðlum á Evrópumótinu í Frakklandi og eftir að leikjunum lauk í C-riðlinum í dag er það orðið ljóst hvaða þjóðir mætast í fyrsta leik sextán liða úrslitanna. Það varð líka ljóst að Ungverjar eru öruggir með sæti í sextán liða úrslitunum hvernig sem fer á morgun.

Sextán liða úrslitin munu hefjast með leik Sviss og Póllands klukkan eitt á laugardaginn.

Sviss lenti í öðru sæti í A-riðlinum á eftir Frökkum og Pólland lenti í öðru sæti í C-riðlinum á eftir Þjóðverjum.

Bæði liðin náðu jafntefli á móti toppliðum sinna riðla. Frakkar og Þjóðverjar mæta bæði hinsvegar eitt af liðunum sem eru með bestan árangur í þriðja sæti.

Tíu lið eru nú þegar komin áfram í sextán liða úrslitin auk þess sem Albanía, Slóvakía og Norður-Írland vonast eftir því að enda sem eitt af þeim fjórum liðum sem ná inn á góðum árangri í þriðja sæti.

Ungverjaland komst áfram með þessum úrslitum í dag því það er nú öruggt að þeir verða alltaf með fjögurra bestu liðanna í 3. sæti hvernig sem fer á morgun.

Liðin sem eru þegar komin áfram í sextán liða úrslitin eru:

Frakkland (1. sæti í A-riðli)

Sviss (2. sæti í A-riðli)

Wales  (1. sæti í B-riðli)

England (2. sæti í B-riðli)

Þýskaland (1. sæti í C-riðli)

Pólland (2. sæti í C-riðli)

Spánn (1 eða 2. sæti í D-riðli)

Króatía (1 eða 2. sæti í D-riðli)

Ítalía (1. sæti í E-riðli)

Ungverjaland ( (1. 2. eða 3. sæti í F-riðli)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×