Handbolti

Fyrsti leikur Rutar í tæpt ár

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Rut Jónsdóttir lék í kvöld sinn fyrsta leik með Randers í dönsku úrvalsdeildinni eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Hún skoraði tvö mörk í sigri Randers á Odense á útivelli, 24-23, en Rut meiddist illa á öxl á landsliðsæfingu í nóvember á síðasta ári.

Rut samdi við Randers í maí síðastliðnum eftir sex ára dvöl hjá Team Tvis Holstebro. Hún gekkst undir aðgerð vegna axlarmeiðslanna í desember.

Randers er í þriðja sæti dönsku deildarinna rmeð átta stig að loknum sex leikjum.


Tengdar fréttir

Enn ein meiðslin í landsliðinu

Hildur Þorgeirsdóttir meiddist á æfingu íslenska landsliðsins í gær og verður frá næstu vikurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×