Erlent

Fyrsta vika forsetans

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump hefur verið á ferð og flugi undanfarna viku.
Donald Trump hefur verið á ferð og flugi undanfarna viku. Nordic­photos/AFP
Donald Trump hefur ekkert farið sér rólega á fyrstu dögunum í embætti forseta Bandaríkjanna. Í kosningabaráttunni gaf hann stórar yfirlýsingar um fyrirætlanir sínar yrði hann kosinn, og er þegar tekinn til við að efna sum loforðin. Mörgum til hrellingar.

Á miðvikudaginn, fimm dögum eftir að hann tók við embætti, undir­ritaði hann á einu bretti fjórar tilskipanir til stjórnvalda, en auk þess hefur hann sent frá sér yfirlýsingar, mætt í viðtöl og verið duglegur að láta í sér heyra á Twitter.

Hann lét það verða eitt sitt fyrsta verk að ræða við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og lofaði eindregnum stuðningi Bandaríkjanna.

Trump skrifar undir tilskipanir sem varða TPP, bann við opinberum ráðningum og fjármögnun á fóstureyðingum erlendis.Vísir/EPA
Í gær tók hann á móti Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, og núna um helgina ætlar hann að ræða í síma við Vladimír Pútín, forseta Rússlands.

Þótt Trump hafi látið hendur standa fram úr ermum fyrstu dagana er þó margt enn óljóst um framkvæmd allra þeirra verkefna, sem hann er búinn að hrinda úr vör. Þótt Repúblikanar séu með meirihluta í báðum deildum þingsins eru þeir mishrifnir af áformum forsetans.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×